Hellisbúinn Hrólfstaðahelli

Heimilisfang: Hrólfstaðahellir
Netfang: hellir@hellir.is
Fylgdu okkur:

Í Hrólfstaðahelli í Landsveit hafa Eiður Kristinsson og Anna Björg Stefánsdóttir komið sér upp aðstöðu til kjötvinnslu þar sem þau fullvinna vörur að mestu úr eigin ræktun.

Þar hafa þau framleitt ferskt, reykt og grafið lamba- og hrossakjöt síðustu átta ár. Þeirra sérstaða felst í hangikjöti, hrossabjúgum og hrossasaltkjöti. Ásamt því framleiða þau reykta og grafna lamba- og hrossavöðva.

Framleiðsla og sala hefur gengið mjög vel undanfarin ár og einfaldlega selst allt sem framleitt er.

Vörurnar selja þau beint frá býli og á jólamörkuðum á Höfuðborgarsvæðinu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?