Á hverju ári halda landverðir um allan heim upp á alþjóðadag landvarða sem er 31. júlí. Þessi dagur er fyrst og fremst til að minnast þeirra mörgu landvarða sem hafa látist eða slasast við skyldustörf. Á sl. 12 mánuðum hafa 105 landverðir látið lífið við störf sem snúa að verndun náttúru og dýralífs. Flestir þeirra eru frá Afríku og Asíu þar sem landverðir eiga m.a. í stríði við veiðiþjófa og skógarhöggsmenn. En einnig er þessi dagur haldinn hátíðlegur til að fagna störfum landvarða um allan heim sem leggja sig alla fram við að vernda náttúru- og menningarleg verðmæti heimsins.

Landverðir Íslands ætla að fagna þessum degi mánudaginn 31. júlí víða um land og bjóða gestum friðlýstra svæða í fræðslugöngur til að kynna störf landvarða. Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, vera í góðum skóm og taka með sér nesti

Friðland að Fjallabaki: Lagt af stað frá skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum kl. 13:00. Um 2 klst. miðlungs erfið ganga þar sem genginn verður Laugahringurinn og gestir fræddir um náttúru svæðisins og störf landvarða. Einnig mun gestum gefast tækifæri til að leggja sitt af mörkum í verndun svæðisins. Leiðsögumenn verða landverðirnir Hringur, Kristín og Valdimar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?