29. mar. kl. 20:00-23:00
Viðburðir
Rangárhöllin, Hellu
Að kvöldi Skírdags, fimmtudaginn 29. mars 2018, fer fram í Rangárhöllinni á Hellu STÓRSÝNING SUNNLENSKRA HESTAMANNA. Sýningin mun einkennast af léttleika og skemmtun og verður boðið uppá eitthvað fyrir alla hestaáhugamenn - unga sem aldna.
Tökum kvöldið frá og komum og fögnum páskum með skemmtilegu fólki á skemmtilegri sýningu!
Forsala aðgöngumiða verður á www.tix.is frá 10. mars - ekki verða tekin frá sæti og því mikilvægt að mæta tímanlega.
Húsið opnar kl. 19:00
Sýningin hefst kl. 20:00