Eitt af verkefnum tengdum ný útgefinni atvinnu- og nýsköpunarstefnu sveitarfélagsins er samkeppni um slagorð sveitarfélagsins. Þar er lagt upp með samkeppni um slagorð Rangárþings ytra meðal íbúa sem endurspeglar m.a. þá framtíðarsýn sem lagt er upp með í stefnunni.

Framtíðarsýn stefnunnar er
"Rangárþing ytra er heilbrigt og aðlaðandi samfélag sem laðar að íbúa og fyrirtæki, þar sem jákvæður andi knýr áfram nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf í fallegu umhverfi"

Atvinnu-, jafnréttis- og menningarmálanefnd velur þrjú bestu slagorðin og veitir glæsileg verðlaun - það er því til mikils að taka þátt!

Skilmálar

Rangárþing ytra áskilur sér rétt til þess að nota slagorðið án endurgjalds í öllu sínu kynningarefni í framtíðinni.

captcha
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?