--
1.Hvammur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Málsnúmer 2401003Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Naglafars ehf um leyfi til að byggja 318,7 m² geymsluhúsnæði skv. uppdráttum frá Larsen ehf, dags. 21.12.2023.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við fram lagða aðaluppdrætti:
--Uppfylla þarf skilyrði um flóttaleiðir út úr báðum rýmum á móti inngangsdyrum.
--Reyklosun er ábótavant í stærra rýminu.

2.Uxahryggur. Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1 ,
Málsnúmer 2401020Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Oddsteins Magnússonar um leyfi til að flytja að og standsetja 18,2 m² gestahús á lóðina Uxahryggur skv. uppdráttum frá Tensio ehf, dags. 21.11.2023
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Fundi slitið - kl. 12:00.