105. fundur 07. febrúar 2024 kl. 08:30 - 09:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Guðrúnartún 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

Málsnúmer 2401064Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Húsháss ehf um leyfi til að byggja alls 333,0 m², 3. íbúða raðhús, á lóðinni Guðrúnartúni 3 skv. uppdráttum frá Arn-Verki ehf, dags. 16.1.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Kjarralda 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2 ,

Málsnúmer 2402008Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Strauma ehf um leyfi til að byggja alls 440,0m², 3. íbúða raðhús, á lóðinni Kjarröldu 1 á Hellu skv. uppdráttum frá Maríu Guðmundsdóttur, Tensio ehf, dags. 5.2.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 09:00.