107. fundur 28. febrúar 2024 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Lyngalda 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2 ,

Málsnúmer 2402055Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Strauma ehf um leyfi til að byggja alls 557,7m², 5 íbúða raðhús, á lóðinni Lyngöldu 3 á Hellu skv. uppdráttum frá Maríu Guðmundsdóttur, Tensio ehf, dags. 21.2.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.