110. fundur 15. apríl 2024 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Fjallaland 54. Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1 ,

Málsnúmer 2209056Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Arnars Páls Michelsen um leyfi til að byggja sumarhús á lóð sinni, Fjallalandi 54, skv. aðaluppdráttum frá Pétri Hrafni Ármannssyni. Nýir uppdrættir lagðir fram þar sem staðsetningu húsa er breytt innan reits.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður endurgefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist, ef tilefni er til þess.

2.Kaldakinn lóð 9 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2404110Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ottóson slf um leyfi til að byggja 70,1 m² gestahús úr timbri skv. uppdráttum frá Ártúni ehf, dags. 26.3.2024. Um matshluta 01 er að ræða.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir:
Vantar að merkja stærðir björgunaropa á grunnmynd.
Vantar að gera ráð fyrir hleðslu rafbíla.

3.Litlavík - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

Málsnúmer 2404111Vakta málsnúmer

Breyting á innra skipulagi og notkun húss, þar sem vinnustofu er breytt í íbúð.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út að nýju þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir við yfirferð:
Gera skal ráð fyrir samtengdum reykskynjurum
Leggja skal fram útreikning á brunaálagi í vélaskemmu til stuðnings brunamótstöðu veggjar.

4.Aðveitustöð við Hellu - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

Málsnúmer 2404120Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsnets um leyfi til að byggja við núverandi tengivirkisbyggingu til stækkunar rofasalar skv. uppdráttum frá Mannviti, dags. 6.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

5.Gata borholuhús, 851- Umsókn um niðurrif mannvirkja -

Málsnúmer 2404121Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Veitna ohf um leyfi til niðurrifs á borholuhúsi í þeirra eigu skv. umsókn dags. 13. mars sl.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarfulltrúi mun gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist eins og förgunaráætlun og staðfesting byggingarstjóra.

6.Helluvað 2 164511 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2404127Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá eiganda lóðarinnar Helluvaðs 2 um leyfi til að byggja og setja niður 3 stk 36 m² gestahús á lóð sína, skv. uppdráttum frá Verkfræðistofu Ívars Haukssonar dags. 20.1.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir við yfirferð:
Vantar að merkja björgunarop á grunnmynd
Rökstyðja þarf ákvæði um algilda hönnun varðandi aðkomu fatlaðra í samræmi við grein 6.10.3.

7.Litlavík - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

Málsnúmer 2404128Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn eiganda lóðarinnar um leyfi til að gera breytingu á notkun núverandi frístundahúsi, þar sem því er breytt í íbúð, skv. gögnum frá TH hönnun, dags. 4.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir við yfirferð:
Gera þarf grein fyrir seinni flóttaleið úr svefnherbergi í minna húsi
Gera þarf grein fyrir hleðslu rafbíla
Vantar að gera grein fyrir loftræstingu frá salernum og eldhúsi

8.Beindalsholt 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

Málsnúmer 2404140Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sólborgar Ingunnar Magnúsdóttur um leyfi til að byggja 204,5 m² íbúðarhús á einni hæð skv. aðaluppdráttum frá SG-Húsum dags. 10.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

9.Minna-Hof lóð 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

Málsnúmer 2404141Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Magnúsar Ingvarssonar um leyfi til að byggja frístundahús úr timbri á einni hæð skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 24.3.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir við yfirferð:
Starfsábyrgð hönnuðar er útrunnin.
Verið er að sækja um leyfi fyrir frístundahúsi en breyting er í ferli á landnotkun þar sem gert verði ráð fyrir að svæðið verði skilgreint sem íbúðarsvæði. Ef notkun miðast við lögheimili þarf að sækja um í samræmi við umfangsflokk 2.
Gera þarf grein fyrir flóttaleiðum úr svefnherbergjum.
Inntök virðast sýnd í svefnherbergi.
Ekki er gert ráð fyrir loftræstingu í salerni né eldhúsi
Vantar að sýna gólfniðurföll í salerni.
Sýna þarf heildarsamantekt úr skráningartöflu sem fylgiskjal eða sem hluti af aðaluppdráttum.
Gera þarf grein fyrir hleðslu rafbíla.
Sjá grein 4.3.1 í byggingarreglugerð.

10.Þjóðólfshagi 12 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

Málsnúmer 2404142Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Glass Cottages ehf um leyfi til að byggja við sumarhús sitt skv. uppdráttum frá ARK-studio, dags. 12.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Ekki liggur fyrir hvort áform séu um útleigu gistingar og því yfirferð ekki miðuð við slíkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfishjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.