111. fundur 30. apríl 2024 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Nes land - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2404186

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðna G. Kristinssonar og Ingibjargar Gunnarsdóttur um leyfi til að setja niður tvö 20,4 m² frístundahús skv. uppdráttum frá HJark, dags. 24.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Landborgir - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

2404177

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landborga ehf um leyfi til að breyta innra skipulagi Landhótels ásamt viðbótum á nokkrum stöðum skv. aðaluppdráttum frá ARKÍS dags. 23.4.2024.

Breytingar 23.04.2024: Þær breytingar sem verða á byggingu eru: Veitingasalur stækkar, veggir verði léttir byggðir úr timbri og stáli, klæddir með sambærilegri/sömu klæðningu og er á núverandi veitingasal. Gluggar og utanhússklæðningar verði endurnýttar á veitingasal. Þak yfir nýjum veitingasal verði glerþak með stálburðarvirki. Aðalinngangur stækkar, veggir verði léttir byggðir úr timbri og stáli, klæddir með sambærilegri/sömu klæðingu og er á núverandi aðalinngang. Gluggar og hurðar verði álklæddir timburgluggar. Þak yfir nýjum aðalinngang verði glerþak með stálburðarvirki. Gleryfirbygging verði í norðausturhorni byggingar, gleryfirbygging komi yfir svalir 2 og 3.hæðar, svalir stækki á 3.hæð og setsvæði stækki á 1.hæð. Burðarvirki verði úr stáli bæði í þaki og glerveggjum, reiknað er með addon glerveggjakerfi á stálsúlur í veggjum og stálbita í þaki. Stækkun verður á byggingu og stækkar þá. 1.hæð um 101,5m2 2.hæð um 32,0m2 3.hæð um 70m2 Samtals um 203,5m2
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Gunnarsholt Frægarður - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2404168

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Lands og skóga um leyfi til að setja upp tvo fóðurturna fyrir korn við núverandi þurrkstöð skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Unnar Sigurðssyni verkfræðingi dags. 18.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Minna-Hof lóð 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2404167

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ágúst Þórs Vilhjálmssonar um leyfi til að byggja 41,3 m² frístundahús úr timbri skv. aðaluppdráttum frá Meter teiknistofu dags. 18.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir voru gerðar:
Óljóst er hvort sótt er um byggingarheimild eða byggingarleyfi. Hvort tveggja kemur fyrir á teikningum. Óskað er eftir rökstuddum upplýsingum frá hönnuði.
Útihurð er sýnd á útlitsteikningu en ekki á grunnmynd.
Ekki er gert ráð fyrir hleðslu rafbíla.

5.Árbær 165067 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2404166

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigdísar Þórarinsdóttur um leyfi til að rífa og endurbyggja bískúr/gestahús á núverandi grunni skv. aðaluppdráttum frá T.ark dags. 15.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Athugasemdir voru gerðar:
Um umfangsflokk 2 er að ræða þar sem um íbúð er að ræða og þar með hefði átt að sækja um byggingarleyfi. Hönnuður geri lagfæringar sem að því lúta.
Björgunarop úr herbergi skal opnast hliðarhengt.
Vandi er að sjá stærð þess björgunarops.
Flóttastiga vantar úr báðum herbergjum á efri hæð.
Vantar útlistun loftræstingar frá eldhúsi.
Vantar að gera ráð fyrir hleðslu rafbíla.
Vantar að skilgreina svæði undir inngangi (B-rými).
Staðsetning sorpskýlis er ekki í samræmi við reglur um eldvarnir.
Vantar að sýna brunamótstöðu milliplötu gagnvart neðri hæð að teknu tilliti til opnanlegra glugga.
Samtengja skal reykskynjara milli hæða.

Fundi slitið - kl. 10:00.