114. fundur 30. maí 2024 kl. 08:00 - 09:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Fjallaland 55 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2405058

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Ingibjörgu Lilju Diðrikssdóttur um leyfi til að byggja 32,8 m² gestahús skv. aðaluppdráttum frá Elvu Björk Margeirsdóttur, dags. 21.5.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð voru gerðar eftirfarandi athugasemdir:
Vantar að skilgreina stærðir björgunaropa skv. reglugerð
Vantar að skilgreina öryggisgler þar sem gler nær neðar en 60 sm frá gólfi.
Vantar skráningartöflu á excel-formi

2.Efra-Fjallaland 27 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

2405059

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Snorra Páls Einarssonar um leyfi til að byggja 74,8 m² frístundahús og 50,4 m² bílgeymslu skv. aðaluppdráttum frá Gunnlaugi Ó. Johnson dags. 16.5.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð voru gerðar eftirfarandi athugasemdir:
Vantar að sýna slökkvitæki og reykskynjara í bílgeymslu.
Vantar skráningartöflu á excel-formi

3.Lækjarstígur 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2405060

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Ármanni Rafni Úlfarssyni um leyfi til að byggja 50,8 m² gestahús og vélageymslu skv. aðaluppdráttum frá Pétri Ármannssyni, dags. 26.7.2023
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að merkja brunamótstöðu veggjar milli vélageymslu og gestahúss.
Vantar að rökstyðja afstöðu gönguhurðar úr vélageymslu gagnvart glugga á salerni
Vantar skráningartöflu á excel-formi

4.Svínhagi L6 A - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2405061

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Birtu Ísey Brynjarsdóttur um leyfi til að byggja 20,4 m² frístundahús skv. aðaluppdráttum frá HJark dags. 22.5.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Ekki er um fráveitukerfi að ræða á svæðinu heldur þarf eigandi að tengja fráveitu sína í eigin rotþró / hreinsivirki
Vantar skráningartöflu á excel-formi

5.Hrauneyjar 179274 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)

2405073

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hrauneyja ehf um leyfi til niðurrifs á tveimur gistiálmum í þeirra eigu skv. umsókn dags. 29.5.2024. Umræddar gistiálmur verða settar niður á öðrum stað og því verður ekki mikið um úrgang til förgunar.
Áform um niðurrif eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur lagt fram förgunaráætlun ef tilefni er til.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Óskað er eftir upplýsingum um framtíðarstaðsetningu húsanna.

Fundi slitið - kl. 09:00.