115. fundur 13. júní 2024 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Lyngalda 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2405078

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn G.G.Trés ehf um leyfi til að byggja 5 íbúða raðhús á lóðinni Lyngalda 1 á Hellu skv. uppdráttum frá Larsen ehf dags. 20.5.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Krókur 4, áður veitt byggingarleyfi

2406005

Um er að ræða byggingu 122,4 m² íbúðarhúss, samþykkt á árinu 2011, þá undir heitinu Króktún K-3. Síðan þá hefur landinu verið skipt upp og þetta á því við um Krók 4, L231745.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Uxahryggur 1. Umsókn um byggingarleyfi

2406018

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Oddsteini Almari Magnússyni um leyfi til að flytja að og standsetja 5 stk 23,0 m² gestahús skv. aðaluppdráttum frá Maríu Guðmundsdóttur Tensio, dags. 10.6.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Hólahraun 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2406028

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Birki Sveinbjörnssyni og bræðrum um leyfi til að flytja að og standsetja 41,0 m² gestahús á lóðinni skv. aðaluppdráttum frá Vigfúsi Halldórssyni dags. 20.5.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

5.Reyðarvatn L6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3

2406029

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Guðbjörgu Jónsdóttur um leyfi til að byggja 92,2 m² sumarhús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Jóhanni Sigurðssyni, Tendra arkitektúr, dags. 10.6.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna og gera ráð fyrir loftræstingu frá eldhúsi.
Ekki virðist gert ráð fyrir möguleika til rafhleðslu bíla.

6.Hólsbakki - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2406008

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Soffíuj Bragadóttur um leyfi til að byggja við íbúðarhús sitt skv. aðaluppdráttum fra Hannesi Árnasyni dags. 12.4.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.