119. fundur 11. september 2024 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Sæluvellir 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2408006

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Gunnars Þorgilssonar um leyfi til að byggja hesthús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 21.11.2022
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Ósamræmis gætir í skráningartöflu og grunnmynd. Vinna þarf nýja skráningartöflu.

2.Klettholt A - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2408041

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hestahofs ehf um leyfi til að flytja að og standsetja geymslugám á lóð sinni Klettholti A skv. aðaluppdráttum frá KJ-ark dags. 15.8.2024
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Árbakki lóð 36 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2408042

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Jóns Björnssonar um leyfi til að flytja að og standsetja forsmíðað sumarhús skv. aðaluppdráttum frá VHÁ verkfræðistofu dags. júlí 2024.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar og er vísað til álits Brunavarnarsviðs HMS:

Byggingarfulltrúi hafnar erindi umsækjanda um að tiltekið húsnæði verði notað sem sumarhús.

Með vísan til 9.6.10. gr. Byggingarreglugerðar m.t.t. brunaeiginleika einangrunar má víkja frá meginreglunni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem dæmi má nefna ef mannvirki fellur undir notkunarflokk 1 og 2 mega stálklæddar húseiningar innihalda brennanlega einangrun í þökum og veggjum þó ekki lakari en í flokki C-s2,d0 og rökstutt af brunahönnuði.

Sem dæmi um mannvirki í notkunarflokki 3 eða 4 eins og í þessu tilfelli þarf undirlag brennanlegrar einangrunar að vera úr steinsteypu eða öðru jafngóðu óbrennanlegu efni klædd af með klæðningu í flokki 1 sem liggur þétt að einangruninni án holrýmdar, unnið samkvæmt leiðbeiningum hönnuðar sem byggja á viðurkenndum og prófuðum lausnum framleiðanda.

Að ofangreindu er ljóst að ekki er heimilt að nýta brennanlega einangrun í létta útveggi nema samkvæmt ofangreindri undantekningu.

4.Ketilhúshagi lóð 3 - Ums??um byggingarleyfi (Ni??if)

2408053

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hildigunnar Ólafsdóttur um leyfi til að fjarlægja og farga sumarhúsi sínu af lóð sinni skv. umsókn þess efnis dags 27.8.2024. Ástæða niðurrifs er vegna vatnstjóns sem varð þegar leki kom upp í lagnagrind og vatn og gufa fór um allt húsið. Staðfesting á tjóni frá Sjóvá lagt fram.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:

-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur lagt fram förgunaráætlun.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Ef ætlunin er að byggja upp að nýju á lóðinni þarf að sækja sérstaklega um slíkt.

5.Höfuðból 210 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2408054

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sturlu Sigurjónssonar um leyfi til að byggja 71,5 m² sumarhús úr timbri auk 14,0 m² sólskála á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá SG-húsum ehf, dags. 28.8.2024.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Björgunarop úr endaherbergi stenst ekki kröfur um björgunarop

6.Mosabraut 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2409022

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sunnu Mjallar Sigurðardóttur um leyfi til að byggja 26,8 m² gestahús úr timbri á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Arkamon ehf, dags. 22.8.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Stærðir björgunaropa standast ekki kröfur byggingarreglugerðar um björgunarop.
Einangrunarkröfur standast ekki ákvæði byggingarreglugerðar.
Loftræstingu vantar á salerni.
Í byggingarlýsingu vantar umfjöllun um brunavarnir.

Fundi slitið - kl. 10:00.