Rangárþing ytra
- fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra, á kjörtímabilinu 2010 - 2014, haldinn að Suðurlandsvegi 3 á Hellu, föstudaginn 1. febrúar 2013, kl. 13.00.
FUNDARGERÐ
Mætt: Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti, Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir, Þorgils Torfi Jónsson, Anna María Kristjánsdóttir, Magnús H. Jóhannsson , Steindór Tómasson og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir sem varamaður Guðfinnu Þorvaldsdóttur. Einnig situr fundinn Drífa Hjartardóttir, sveitarstjóri, sem ritar fundargerð. Haraldur Birgir Haraldsson, sat fundinn undir lið 2.3. Katrín Sigurðardóttir varamaður Þorgils Torfa Jónssonar tók sæti á fundinum frá og með lið nr. 15. Gunnar Aron Ólason sat fundinn undir lið nr. 18.
Áður en fundur hófst eða kl. 12.30 komu fulltrúar Rangárhallarinnar og kynntu málaleitan sína varðandi hlutafjáraukningu í Rangárhöllinni ehf.
Oddviti setti fundinn kl. 13.00 og stjórnaði honum.
Sveitarstjóri og oddviti gerðu stuttlega grein fyrir viðfangsefnum frá síðasta fundi.
- Fundargerðir hreppsráðs:
1.1 28. fundur 18.01.13.
Bókun Á-lista : "Ákveðin vonbrigði eru að ósk fulltrúa Á-lista í hreppsráði í samræmi við 5. lið í fundargerð hreppsráðs, þar sem óskað er svara við spurningum um fjármögnun og stöðu mála vegna viðbyggingar við Lund, sé ekki virt af formanni stjórnar sem staddur er hér á fundinum."
Sveitarstjóri bókar: " Að sjálfsögðu mun stjórn Lundar svara þessum spurningum eftir að hafa rætt þær á stjórnarfundi Lundar."
Fundargerðin staðfest
- Fundargerðir annarra fastanefnda, ráða og stjórna til staðfestingar:
2.1 Fundur í íþrótta- og tómstundanefnd, 23.01.13 í þremur liðum.
Vegna liðar 1 í fundargerðinni: Lagt er til að sveitarstjóra og Eignaumsjón í samráði við formann íþrótta- og tómstundanefndar verði falið að kanna hvort að húsnæðið sem tilgreint er að Suðurlandsvegi 3 sé tiltækt og mögulega til leigu vegna starfsemi félagsmiðstövar. Kannað verði hver möguleg leiga getur verið og hvort þurfi að lagfæra húsnæðið. Tillögu verði skilað fyrir næsta fund hreppsráðs sem falin er fullnaðarafgreiðsla málsins.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin að öðru leyti staðfest samhljóða.
2.2 55. fundur skipulagsnefndar, 28.01.13 í 24 liðum.
Hver liður fundargerðarinnar er afgreiddur sérstaklega.
1.
1301028 - Hella, breyting á aðalskipulagi, Miðbær, Dynskálar og Rangárbakkar.
Rangárþing ytra vinnur að breytingu á aðalskipulagi Rangáþrings ytra 2010-2022. Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til breyttrar landnotkunar á Hellu sem nær til iðnaðarsvæðis, verslunar- og þjónustusvæðis, breytinga á vegakerfi og til breyttra skilgreininga á tengivegum og lítilsháttar breytinga á göngustígum. Breyting þessi hefur hlotið málsmeðferð skv. 31. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin var endurauglýst vegna formgalla og var frestur til athugasemda til og með 16. janúar. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Skipulagsnefnd samþykkir aðalskipulagsbreytinguna til samræmis við 2. mgr. 32.gr. skipulagaslaga nr. 123/2010 og mælist til að skipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
2.
1301031 - Hella, Rangárbakkar, deiliskipulag
Rangárþing ytra vinnur að deiliskipulagi iðnaðar- athafna- þjónustu- og verslunarsvæðis við Rangárbakka á Hellu. Deiliskipulagstillagn hlaut málsmeðferð skv. 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var endurauglýst vegna formgalla smávægilegra breytinga og rann athugasemdarfrestur út 16. janúar 2013. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
3.
1301030 - Hella, Dynskálar, deiliskipulag
Rangárþing ytra vinnur að deiliskipulagi athafna- og iðnaðarsvæða við Dynskála á Hellu. Deiliskipulagstillagn hlaut málsmeðferð skv. 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var endurauglýst vegna formgalla og rann athugasemdarfrestur út 16. janúar 2013. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu skipulagstillögunnar.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
4.
1301029 - Hella, miðbæjarsvæði, deiliskipulag
Rangárþing ytra vinnur að deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæði á Hellu. Skipulagið tekur til miðbæjarsvæðisins ásamt verslunar- og þjónustusvæðis austan þess. Deiliskipulagstillagn hlaut málsmeðferð skv. 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var endurauglýst vegna formgalla og rann athugasemdarfrestur út 16. janúar 2013. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
5.
1301009 - Tjörfastaðir, Deiliskipulag
Hjörtur Egilsson fær Steinsholt til að útbúa deiliskipulag af landi sínu úr landi Tjörfastaða, landnr. 165013. Í ferli skipulagstillögunnar urðu eigendaskipti á landi því sem um ræðir. Núverandi eigendur eru Landgræðsla ríkisins. Skipulagsfulltrúi leggur fram bréf frá núverandi landeiganda þar sem fram kemur að engar athugasemdir séu gerðar við skipulagstillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
6.
1301041 - Jarlsstaðir, efnistaka úr Rangá
Þór Þorsteinsson hefur óskað eftir leyfi til efnistöku úr Rangá í landi sínu við Jarlsstaði. Umsókn barst 22. júní 2011. Umsagnir helstu hagsmunaaðila liggja fyrir. Sveitastjórn frestaði málinu á fundi sínum. Athugasemd hefur borist frá nærliggjandi landeiganda, austan árinnar. Meðfylgjandi er bréf frá Hjalta Harðarsyni þar sem m.a. er farið fram á svör við eftirfarandi spurningum: 1. Hver eru mörk efnistökusvæðis (útlínur) og hve langt út í farveg árinnar má fara eftir efni? Spurt er í ljósi þess að undanfarin ár hafa Rangárflúðir ehf tekið möl úr árfarveginum öllum og allt að eystri bakka árinnar. 2. Hver eru skekkjumörk í magni efnis sem leyft er að taka? 3. Hvernig verður fylgst með efnistökunni? Þar sem umsgnir annarra hagsmunaaðila eru að öllu jöfnu jákvæðar felur Skipulagsnefnd skipulagsfulltrúa að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr Rangá með þeim skilyrðum sem fylgja erindinu. Samhliða skal gera breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 og telur nefndin að um óverulega breytingu á aðalskipulaginu sé að ræða og fari því um meðferð skv. 2. mgr. 36. greinar Skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara erindi bréfritara.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
7.
1212003 - Gilsbakki Deiliskipulag
Um er að ræða rúmlega 100 ha jörð á Rangárvöllum. Tillagan tekur til byggingar íbúðarhúss, útihúsa/skemmu, bílskúrs og geymslu ásamt stækkun á núverandi frístundahúsi. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Rangárþings
ytra þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Tillagan var auglýst en vegna formgalla í auglýsingu þarf að endurauglýsa tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
8.
1212004 - Kot (Jónskot) deiliskipulag
Um er að ræða um 1 ha eignarlóð (164714) úr landi Kots á Rangárvöllum. Gert er ráð fyrir að hægt sé að stækka núverandi frístundahús, byggja gestahús í stað geymslu sem verður rifin og byggja nýja geymslu. Byggðin er á skilgreinda vatns¬verndar¬svæði, í verndarflokki III og því er gert ráð fyrir frágangi frárennslismála í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands. Tillagan var auglýst en vegna formgalla í auglýsingu þarf að endurauglýsa tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
9.
1212005 - Lunansholt I, deiliskipulag
Tillagan tekur til 0,5 ha spildu þar sem gert er ráð fyrir byggingu sumarhúss, geymslu og gestahúss í landi Lunansholts 1. Tillagan er í samræmi við gildandi aðal¬skipu¬lag Rangárþings ytra, sem gerir ráð fyrir að heimilt sé að byggja allt að þrjú frí¬stunda¬hús á jörðum sem eru 50 ha eða stærri. Tillagan var auglýst en vegna formgalla í auglýsingu þarf að endurauglýsa tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
10.
1212006 - Svínhagi 164560, deiliskipulag
Afmörkun skipulagssvæðis er breytt þar sem mörk skipulagssvæðis um miðbik svæðisins færast til norðurs, mörk skipulagssvæðisins til vesturs eru sett í lóðarmörk. Minnkar því opið óbyggt svæði sem því nemur. Í stað þess að nefna svæðið Svínhagi er svæðið nefnt Heklubyggð. Númerum og heiti lóða er breytt sjá kafla 2.1. Lóðir H40-H42 eru sameinaðar í eina lóð Klettahraun 6. Skilmálar svæðisins eru endurskoðaðir. Opið óbyggt svæði sunnan Hekluhrauns 10 og 14 (H-50,H52) er reitað upp í spildur, staðsetning tjaldsvæðis og sameiginlegrar grillaðstöðu skilgreind. Endurskoðaður deiliskipulagsuppdráttur er settur fram sem einn uppdráttur í mkv. 1:4000 í A1 í stað tveggja uppdrátta áður. Þetta er gert til þess að auðvelda yfirsýn yfir heildar svæðið. Með gildistöku endurskoðaðs deiliskipulags falla úr gildi eldri uppdrættir dags. 04.09.03 og breytt 06.01.2004 ásamt greinargerð dags 21.okt 2003,breytt. þann 5. janúar 2004. Tillagan var auglýst en vegna formgalla í auglýsingu þarf að endurauglýsa
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
11.
1212007 - Svínhagi SH13 og SH14, deiliskipulag
Deiliskipulagið nær yfir uppbyggingu lóða SH13 og SH14 úr landi Svínhaga í Rangárþingi ytra, samtals 12,7 ha að stærð. Lóðirnar liggja sunnan við austurhluta frístundasvæðisins Heklubyggðar og liggja lóðirnar Klapparhraun 1 og 3 að skipulags svæðinu. Deiliskipulagið tekur til byggingar á íbúðarhúsi, gestahúsum, gróðurhúsi, vélarhúsi ásamt útihúsi/gróðurhús Aðkoma að lóðunum er frá Þingskálavegi 268 í um 250m fjarlægð frá aðkomuvegi að frístundalóðum í Heklubyggð. Tillagan var auglýst en vegna formgalla í auglýsingu þarf að endurauglýsa tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
12.
1301015 - Merkurhraun, Efnisnáma, breyting á aðalskipulagi 2010-2022
Svanur G. Bjarnason fyrir hönd Vegagerðarinnar óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu í námukerfi Vegagerðarinnar í Merkurhrauni ofan Galtalækjar. Náman er ekki sýnd inni á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 sem kallar á breytingu á því. Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði framkvæmdaleyfi og jafnframt gerðar breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 því samhliða. Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu
á aðalskipulaginu sé að ræða og leggur því til við sveitastjórn að farið verði eftir ákvæðum 2. mgr. 36. greinar Skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar og felur sveitarstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi og felur skipulagsfulltrúa að annast óverulega breytingu á aðalskipulagi sem nauðsynleg er.
13.
1301007 - Minni-Vellir, landnr. 220262, Umsókn um heimild til skipulagsgerðar
María Bjarnadóttir, Verkfræðistofu Suðurlands, fyrir hönd landeiganda, leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land úr Minni-Völlum. Um er að ræða 10 ha spildu, landnr. 220262. Engin starfsemi eða byggingar eru á lóðinni í dag.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv.3. mgr. 40. gr.skipulagslaga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
14.
1301032 - Svínhagi, SH5, deiliskipulag
Sigrún Erna Geirsdóttir og Kjartan Þór Halldórsson sækja um leyfi til að deiliskipuleggja 3 ha eignarlóð sína úr landi Svínhaga, landnr. 211016. Lóðin er skilgreind sem frístundasvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv.3. mgr. 40. gr.skipulagslaga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
15.
1301045 - Krókur, deiliskipulag
Grettir Rúnarsson og Ingi Ingvarsson óska heimildar til að skipuleggja svæðið við Krók í tengslum við kaup þeirra á gangnamannakofa sem þar er. Skipulagsnefnd tekur vel í erindið og óskar eftir nánari samráði við gerð deiliskipulags á umræddu svæði. Verið er að vinna að gerð rammaskipulags fyrir Fjallabakssvæðið og telur nefndin að sú vinna skuli vera leiðandi og stefnumarkandi fyrir frekari skipulagsvinnu á hálendinu. Jafnframt bendir Skipulagsnefnd á að hafa skal samráð við landeiganda sem í þessu tilfelli er Forsætisráðuneytið. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna og koma á samráði á milli aðila.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
16.
1301027 - Fitjamenn vegna sæluhúss á Hungurfit á Rangárvallaafrétti
Guðmundur Árnason fyrir hönd Fitjamanna óskar eftir leyfi til að reisa sæluhús, allt að 75 m² í Hungurfitum. Sæluhúsið yrði gististaður fyrir fjallmenn og samferðafólk þeirra í haustleitum. Skipulagsnefnd tekur vel í erindið en telur að þar sem ekki liggi fyrir deiliskipulag af tilteknu svæði sé ekki hægt að veita heimild til frekari bygginga á svæðinu að svo stöddu. Skipulagsfulltrúa verði falið að ræða við umsækjendur um aðkomu að deiliskipulagi fyrir svæðið, og verði farið eftir skilmálum væntanlegs rammaskipulags fyrir Fjallabakssvæðið, sem nú er í vinnslu. Jafnframt bendir Skipulagsnefnd á að hafa skal samráð við landeiganda sem í þessu tilfelli er Forsætisráðuneytið.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar
17.
1301024 - Umsókn um lóðir nr. 45-47-48 við Dynskála á Hellu
Sigurður Árni Geirsson fyrir hönd Reykjagarðs leggur inn umsókn um lóðir nr. 45-47-48 við Dynskála á Hellu. Einnig er farið fram á breytingar á núverandi vegakerfi við Dynskála til að framtíðaruppbygging við Reykjagarð fái notið sín. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu með umsækjanda.
Hreppsnefnd staðfestir niðurstöðu skipulagsnefndar og bendir á að umsóknin verði, þegar endanleg niðurstaða skipulagsfulltrúa liggur fyrir, lögð fyrir hreppsráð, sem annast lóðaúthlutanir skv. reglum sveitarfélagsins.
18.
1301048 - Athugasemd vegna deiliskipulags við Dynskála á Hellu.
Svanur Sævar Lárusson fyrir hönd Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu sendir inn athugasemd vegna auglýsts deiliskipulags við Dynskála á Hellu. Vegna misskilnings bréfritara barst athugasemdin eftir auglýstan
athugasemdarfrest. Farið er fram á að lóðamörk lóðarinnar nr. 34 við Dynskála verði færð til suðurs, til jafns á við aðrar lóðir vestan Langasands. Einnig skrifa undir bréfið, eigendur að lóðum nr. 30 og 32 við Dynskála, erindinu til staðfestu. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram í málinu og leita leiða til niðurstöðu í því.
19.
1301049 - Umsókn um lóðina Ægissíða 1, landnr. 192666
Kristjón Kristjánsson óskar eftir að eignast lóðina Ægissíða 1, samtals um 8 ha. Hugmynd umsækjanda er að reisa allt að 300 m² einbýlishús og hesthús á lóðinni. Svæðið yrði deiliskipulagt ef af kaupum verður. Erindinu var vísað til Skipulagsnefndar frá 39. fundi hreppsnefndar. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins.
Tillaga Á lista : "Lóð nr. 192666 úr Ægissíðulandi, verði auglýst til sölu sem “búgarðslóð”. Í framhaldi verði unnið að breytingu á skipulagi ef viðunandi verð fæst fyrir lóðina. Skipulagsfulltrúa falið að auglýsa lóðina/spilduna til sölu".
Breytingartillaga frá oddvita: " hreppsnefnd samþykkir að fela skipulagsnefnd að hraða málinu og skila tillögu fyrir næsta fund hreppsnefndar".
Breytingartillagan er samþykkt samhljóða.
20.
1301001 - Svínhagi H-17, Áskorun um aðgerðir vegna ástands sumarhúss
Send var áskorun vegna lélegs ástands aðflutts sumarhúss og krafist aðgerða af hálfu eiganda. Skipulagsnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
21.
1212032 - Ketilhúshagi, lóð 46 Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu 15,7 m²
Ragnar Pálsson sækir um leyfi til byggingar á geymslu á lóð sinni nr. 46 í Ketilhúshaga. Geymslan er 15,7 m² að stærð, byggð úr timbri. Byggingarfulltrúi samþykkti ósk umsækjanda 19. des 2012. Skipulagsnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
22.
1301002 - Hrólfstaðahellir, Umsókn um byggingarleyfi Breyting fjárhúss í smávinnslu
Eiður E. Kristinsson sækir um leyfi til að breyta fjárhúsi sínu í smávinnslu kjötafurða á lóð sinni skv. fyrirliggjandi teikningum. Skipulagsnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
23.
1212028 - Holtsmúli I, Umsókn um byggingarleyfi Reiðhöll
Svanhildur Hall fyrir hönd Úrvalshesta ehf sækir um leyfi til byggingar á reiðhöll á lóð sinni, Holtsmúli I. Deiliskipulag er í vinnslu fyrir svæðið. Byggingarfulltrúi samþykkti ósk umsækjanda 19. des 2012 Skipulagsnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
24.
1212011 - Lunansholt 1, Umsókn um byggingarleyfi, sumarhús
Jón Eiríkur Rafnsson sækir um leyfi til byggingar á sumarhúsi á lóð sinni Lunansholt 1. Byggingarfulltrúi samþykkti ósk umsækjanda 19. des 2012. Skipulagsnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
Skipulags og byggingarfulltrúi kynnti lóðarumsókn frá Sracta fyrir 100 herbergja hótel.
2.3 20. fundur samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar 28.01.13 í níu liðum.
Fulltrúar Á-lista fara fram á að umsögn samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar um frumvarp til nýrra Náttúruverndarlaga verði lögð fyrir sveitarstjórn áður en hún verði send nefndasviði Alþingis. Mikilvægt er að sveitarstjórn fái umsögnina til staðfestingar, enda verði hún send í nafni hennar.
Sveitarstjóra falið að koma þessum tilmælum til formanns nefndarinnar.
Fundargerðin staðfest.
2.4 8. fundur atvinnu- og menningarmálanefndar, 21.01.13 í sex liðum.
Vegna 6. liðar: Sveitarstjóra ásamt formanni atvinnu og menningarmálanefndar er falið að koma „appinu“ á laggirnar til reynslu í eitt ár í samstarfi við „Stokk“. Kostnaður greiðist af liðnum kynningarmál í sameiginlegum kostnaði.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin að öðru leyti staðfest.
- Fundargerðir annarra nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
3.1 145. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands, 18.01.13, í þremur liðum.
Sveitarstjóra verði falið að kanna hvaða möguleikar felast í úrskurði úrskurðarnefndar almannatrygginga varðandi talþjálfun barna í Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða.
3.2 147. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 18.01.13, í sjö liðum.
3.3 463. fundur stjórnar SASS, 18.01.13, í 15 liðum.
3.4 9. fundur Sambands orkusveitarfélaga, 11.01.13, í átta liðum.
3.4.1 Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2012 til kynningar.
3.5 10. fundur nefndar um Rammaskipulag Fjallabaks, 28.11.12, í sjö liðum.
3.6 11. fundur nefndar um Rammaskipulag Fjallabaks, 13.12.12, í tveimur liðum.
3.7 12. fundur nefndar um Rammaskipulag Fjallabaks, 22.01.13, í tveimur liðum.
- Tillaga að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa og aðra stjórnendur Rangárþings ytra - síðari umræða.
Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins.
- Kjör eins fulltrúa í stjórn Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis.
5.1 Tilkynning frá Kjartani Magnússyni um úrsögn úr stjórn Lundar frá 20. janúar 2013, til kynningar.
Magnús H. Jóhannsson er tilnefndur sem aðalfulltrúi í stjórn Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir er tilnefnd sem varafulltrúi í stjórn Lundar, hjúkrunar-og dvalarheimilis.
Samþykkt samhljóða.
- Beiðni um útborgun orlofsdaga skv. sérstöku samkomulagi fyrrv. oddvita og fyrrv. sveitarstjóra frá 8. nóvember 2012.
Farið er fram á að umsamin inneign vegna ótekinna orlofsdaga verði greidd út fyrr en áformað var.
Samþykkt samhljóða.
- Tillaga um skipan nefndar til skoðunar á tölfræði og hagkvæmni í rekstri grunnskóla Rangárþings ytra, vísað til
hreppsnefndar frá hreppsráði 18.01.13. Nefndinni er falið að taka saman allar staðreyndir um kostnað við rekstur grunnskólanna ásamt því að taka saman samanburðarhæfar tölur frá öðrum sveitarfélögum og stilla upp mögulegum útfærslum. Nefndin skili þessu til hreppsnefndar eins fljótt og mögulegt verður. Nefndinni er ekki ætlað að gera
tillögur um breytingar á núverandi fyrirkomulagi í rekstri grunnskóla Rangárþings ytra. Sveitarstjóri og formaður fræðslunefndar skulu vinna með nefndinni og greiða götu hennar varðandi öflun upplýsinga.
Tilnefnd eru:
Heimir Hafsteinsson,
Hulda Karlsdóttir,
Á-listi áréttar tillögu frá 41. fundi 11.01.13.
Bókun Á lista: fulltrúar Álista ítreka þá skoðun sína að tillögu D - lista og Margrétar Ýrar eigi frekar að vinna í hreppsráði enda m.a.hlutverk þess að skoða og yfirfara mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins. Talsverð vinna er fólgin í þessari skoðun og því óþarfur auka kostnaður að skipa nefnd. Allar tölulegar upplýsingar um rekstur grunnskóla Rangárþings ytra liggja fyrir í bókhaldi sveitarfélagsins, einnig í skýrslum og úttektum. Hluti af þessum upplýsingum eru trúnaðarmál sem varða m.a.kjör starfsfólks.. Því er eðlilegra að það sé unnið á lokuðum fundum hreppsráðs með aðstoð starfsfólks á skrifstofu heldur en aðilum sem ekki eru kjörnir fulltrúar Rangárþings ytra. Í ljósi þessa mun Á listinn ekki skipa fulltrúa í vinnuhópinn í samræmi við tillöguna.
Samþykkt með fjórum atkvæðum, á móti eru (ST,MHG), einn situr hjá (MHJ)
- Reykjagarður hf. 09.01.13 - umsókn um lóðirnar nr. 45, 47 og 48 við Dynskála á Hellu.
Vísað er til niðurstöðu í 17. lið fundargerðar skipulagsnefndar frá 28.01.13.
- Tillaga um gerð samkomulags við Loftmyndir ehf., sbr. framlagt uppkast, um afnot/leigu á tölvutækum
landfræðilegum gögnum í eigu Loftmynda ehf.
Málinu frestað til næsta fundar hreppsnefndar.
- Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði Suðurlands um þjónustu við fatlaða 14.12.12, til staðfestingar.
Samningurinn staðfestur samhljóða.
- Samningur um þjónustu við atvinnuleitendur milli Vinnumálastofnunar og Rangárþings ytra 14.01.13, til staðfestingar.
Samningurinn staðfestur samhljóða.
- Möguleg hlutafjáraukning í Rangárhöllinni - sbr. tilmæli frá fyrirtækinu - umræða.
Sveitarstjóra falið að óska eftir fundi með fulltrúa nágrannasveitarfélaga um málið. Fulltrúar Rangárþings ytra verða
sveitarstjóri, oddviti og Steindór Tómasson.
Samþykkt samhljóða.
- Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið f.h. Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, úthlutun styrks 2013 vegna vinnu við deiliskipulag í Landmannalaugum, 25.01.13. Úthlutað er þremur milljónum króna á árinu 2013 til þessa verkefnis.
Hreppsnefnd þakkar fyrir og fagnar framangreindri úthlutun.
Sveitarstjóra er falið að leita eftir gerð samnings við Steinsholt ehf. um vinnu við undirbúning að gerð deiliskipulags
fyrir Landmannalaugar sem verði unnið í samstarfi við alla hagsmunaaðila á svæðinu. Gert er ráð fyrir að samkeppni
fari fram um það hver muni vinna að gerð deiliskipulagsins.
Samþykkt samhljóða.
- Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið f.h. Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, úthlutun styrks 2013 vegna vinnu við Rammaskipulag Fjallabaks, 25.01.13. Úthlutað er þremur milljónum króna á árinu 2013 til þessa verkefnis.
Hreppsnefnd þakkar fyrir og fagnar framangreindri úthlutun
Þorgils Torfi Jónsson víkur af fundi kl. 15.15 og varamaður hans Katrín Sigurðardóttir tekur sæti hans á fundinum.
- Rangárþing eystra, 14.01.13, tilmæli um þátttöku í endurskoðun og prentun á sameiginlegu þjónustukorti.
Samþykkt þátttaka í endurskoðun og útgáfu þjónustukortsins með sama hætti og verið hefur undanfarin ár.
- Þjónustusamningur milli KFR og Rangárþings ytra 29.01.13, til staðfestingar.
Samningurinn er staðfestur samhljóða.
- Frá Á-lista: Fundarstjórn oddvita.
Bókun Á lista: " Með því að taka fundarstjórn oddvita á dagskrá eru fulltrúar Á-lista að mótmæla fundarstjórn oddvita á 39. fundi hreppsnefndar þann 14. des. 2012 við lið 17.1. Undir þessum lið vék Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir af fundi vegna vanhæfis og fulltrúar Á-lista óskuðu eftir því að kalla inn varamann, en eins og kunnugt er, kemur varamaður hennar af Á-lista. Oddviti neitaði fulltrúum Á-lista að kalla inn varamann vegna þess að málið væri til kynningar. Á það skal bent að í sveitarstjórnarlögum 2011 nr.138 (31. grein) segir: “Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu.” Að okkar mati felur “meðferð máls” í sér alla umræðu um dagskrárliði sem á dagskrá fundarins eru, hvort sem hún leiðir til formlegrar afgreiðslu eða ekki. Gildir þá einu hvort um er að ræða efni til kynningar eða ekki. Þó að neitun oddvita hafi ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins, þá tafði hún framgang málsins. Við teljum rétt að benda á þetta atvik og óskum eftir því að það endurtaki sig ekki".
Bókun oddvita: Oddviti taldi að stjórn hans vegna umrædds liðar á 39. fundi hefði verið í samræmi við ákvæði Sveitarstjórnarlaga. Oddviti mun taka ofangreinda ábendingu til skoðunar.
- Ráðgjöf frá Lögfræði- og velferðarsviði Sambands ísl. sveitarfélaga vegna álitamáls um skólaakstur 14.01.13.
Margét Ýrr Sigurgeirsdóttir víkur af fundi kl. 15.45 vegna vanhæfis og Gunnar Aron Ólason varamaður tekur sæti á fundinum.
Oddvitum D og Á lista er falið að leita til endurskoðunarfyrirtækis eða lögmannsstofu með málið til nánari athugunar.
Áliti verði skilað fyrir 1. mars n.k.
Samþykkt samhljóða.
Þökkuð er góð ráðgjöf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í þessu erfiða máli. Sérstaklega er þakkað fyrir gagnlegar ábendingar um lögfræðileg álitaefni. Ljóst þykir að meðferð málsins kallar í senn á þekkingu á fjárhagslegum/bókhaldslegum atriðum sem og lögfræðilegum atriðum af sviði samningaréttar eins og segir í minnisblaðinu.
Gunnar Aron Ólason víkur af fundi kl. 16.00 og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir tekur sæti á ný á fundinum.
- Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
19.1 Fræðslunetið og Háskólafélag Suðurlands 16.01.13, boð um þátttöku í hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs
Suðurlands, 31. janúar 2013, á Selfossi.
19.2 HSK - Ánægjuvogin - Styrkir íþrótta - kynning 4. febrúar 2013 á Selfossi.
19.3 Samband ísl. sveitarfélaga - Samráðsfundur sveitarfélaga vegna stefnumótunar um upplýsingasamfélagið
04.02.13 í Reykjavík.
19.4 Mennta- og menningarmálaráðuneytið 22.01.13 - tilk. um að Námsmatsstofnun hafi umsjón með framkvæmd ytra mats leik- og grunnskóla.
- Annað efni til kynningar:
20.1 Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga 24. 01.13 - niðurstaða varðandi áætlun um skuldahlutfall.
20.2 Orkustofnun 22.01.13 - veiting nýtingarleyfis til Matorku ehf.
Guðfinnu Þorvaldsdóttur er falið í samvinnu við sveitarstjóra að veita aðilum að málinu aðstoð eftir því sem þörf kann að verða fyrir vegna fyrirhugaðrar stofnunar hitaveitu í Landsveit.
Samþykkt samhljóða.
20.3 Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili 24.01.13 - afrit af bréfi til velferðarráðuneytisins vegna fjármögnunar
framkvæmda.
20.4 Landgræðsla ríkisins 25.01.13 - um ástand afrétta í Rangárþingi ytra, upprekstur sauðfjár og landbótastarf.
Samgöngu- hálendis- og umhverfisnefnd verði falið að taka minnisblað Landgræðslunnar til umfjöllunar og bjóða landgræðslustjóra á fund nefndarinnar til að ræða stöðu afréttanna. Nefndin skili álitsgerð til sveitarstjórnar að loknum fundi.
Samþykkt samhljóða.
20.5 UMFÍ 24.01.13 - þakkir fyrir veitta gistiaðstöðu fyrir keppnislið ungmennafélaga.
20.6 Sveitarfélögin Stopini og Jaunjelgava, 28.01.13, leit að samstarfsaðila um námshópaskipti.
Fundargerðin yfirfarin og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.16.21.