122. fundur 02. október 2024 kl. 08:00 - 09:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Hofstígur 21 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2312039

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Lauru Diehl um leyfi til að flytja að og standsetja um 36,0 m² gestahús á lóðina Hofstígur 21 skv. uppdráttum frá Balsa ehf, dags. 12.11.2023. Gerðar voru athugasemdir vegna áforma um gistingu til útleigu og bárust uppfærð gögn frá hönnuði þann 1. október sl.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?