123. fundur 16. október 2024 kl. 08:45 - 09:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Alviðra - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2410020

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ólafs Jónssonar um leyfi til að flytja að á lóð sína 79,5 m² gestahús úr timbri skv. aðaluppdráttum frá Al-Hönnun ehf, dags. 9.9.2024. Húsið verður flutt frá Þingskálum í sama sveitarfélagi. Húsið mun verða að íbúðarhúsi.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2 þar sem um íbúðarhús er að ræða.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Þingskálar - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)

2410038

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Viðars H. Steinarssonar um leyfi til að fjarlægja timburhús af undirstöðum sínum og flytja það á aðra lóð. Umrædd lóð er Alviðra í sama sveitarfélagi.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við lokaúttekt skulu eftirfarandi atriði uppfyllt:
-Staðfesting frá rafvirkja um aftengingu og frágang stofnlagnar
-Staðfesting frá pípara um aftengingu og frágang vatns og fráveitu
-Frágangur eftir flutning verði í samræmi við nærumhverfi

3.Meiri-Tunga 1B - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)

2410039

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn eigenda um leyfi til að rífa og fjarlægja gamalt geymsluhúsnæði / bragga af lóð sinni.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við lokaúttekt skulu eftirfarandi atriði uppfyllt:
-Staðfesting frá rafvirkja um aftengingu og frágang stofnlagnar
-Staðfesting frá pípara um aftengingu og frágang vatns og fráveitu
-Frágangur eftir flutning verði í samræmi við nærumhverfi

Fundi slitið - kl. 09:15.