125. fundur 30. október 2024 kl. 10:00 - 12:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Ölversholt 2 lóð 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2410069Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðbjörgu Benjamínsdóttur um leyfi til að byggja um 40 m² gestahús úr timbri skv. aðaluppdráttum frá VA-arkitektum ehf, dags. 17.10.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna stærð björgunaropa.
Vantar loftræstingu úr salerni.

2.Hofstígur 18 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2410070Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Friðgeirs Grímssonar um leyfi til að byggja alls 53,4 m² íbúðarhúsnæði á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá PRO-ark dags. 4.10.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 12:00.