130. fundur 11. desember 2024 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Hagakrókur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2412019

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hróars Magnússonar um leyfi til að byggja 2 stk 24,3 m² gistiskála skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Unnari Sigurðssyni dags. 10.11.2024
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2 þar sem um frístundahús til ferðaþjónustu er að ræða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Loftræstingu vantar frá salerni.
Ekki virðist gert ráð fyrir möguleikum á hleðslu rafbíla.
Fjarlægð frá núverandi sumarhúsi er ekki nægileg að teknu tilliti til eldvarna.
Taka þarf fram að eldvarnarteppi sé við eldunaraðstöðu.
Neyðarlýsingu vantar í alrými
Sjálflýsandi merkingar skulu settar við flóttaleiðir.

Fundi slitið - kl. 10:00.