131. fundur 15. janúar 2025 kl. 08:00 - 09:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Mosabraut 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2409022

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sunnu Mjallar Sigurðardóttur um leyfi til að byggja 26,8 m² gestahús úr timbri á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Arkamon ehf, dags. 22.8.2024. Athugasemdir voru gerðar í fyrri yfirferð aðaluppdrátta þar sem björgunarop stóðust ekki kröfur, loftræsting vantaði frá salerni, vantaði umfjöllun um brunavarnir og einangrunarkröfur ekki í samræmi við framsetningu.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Húsið getur ekki verið skilgreint í notkunarflokki 1 heldur á að vera í notkunarflokki 3.
Merking björgunarops á grunnmynd er á röngum stað.

2.Birkivellir - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2501019

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Klemenz Karls Guðmundssonar um leyfi til að byggja alls 244,0 m² íbúðarhúsnæði með innbyggðum bílskúr á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá SG-Húsum dags. 8.1.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Austvaðsholt 1B - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2412058

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hekluhesta ehf um leyfi til að flytja að og standsetja 22,5 m² gestahús skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Unnari Sigurðssyni, dags. 10.12.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar loftræstingu frá salerni og eldhúsi
Vantar gólfniðurföll í salerni
Vantar slökkvitæki

4.Hofstígur 17. L227783. Hof Luxury Villa ehf. Beiðni um umsögn fyrir breytingu á starfsleyfi

2501011

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Inga Ingvarssonar, kt. 110369-3529 fyrir hönd Hof Villa ehf., kt. 520417-1170 um breytingar á starfsleyfi fyrir gistingu á lóðinni Hofstígur 17. L227783, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 07.01.2025.
Byggingarfulltrúi í samráði við slökkvistjóra staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

5.Dynskálar 51. L219725. AfroViking Laundry House. Beiðni um umsögn fyrir starfsleyfi

2501029

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Sarah Mareche, kt. 011085-5989 fyrir hönd AfroViking laundry House ehf., kt. 550824-0190 um starfsleyfi til reksturs þvottahúss í iðnaðarhúsnæði á lóðinni Dynskálar 51, L219725, mhl. 01 0105 Rangárþingi ytra. Umsókn barst 13.01.2025.
Byggingarfulltrúi í samráði við slökkvistjóra staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Fundi slitið - kl. 09:00.