136. fundur 26. febrúar 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Útskálar 6-8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3

2502053

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Rangárþings ytra um leyfi til byggingar á leikskóla. Leikskólinn er byggður á steyptum undirstöðum og forsteyptum einingum, með 8 deildum og fyrir um 160 börn og 40-50 starfsmenn. Aðaluppdrættir frá ARKIS dags. 12.2.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 3. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Rangárbakki 2. L174567. Öldur ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2502078

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Helga Þóris Sveinssonar, fyrir hönd Öldurs ehf., kt. 510417-0380 um starfsleyfi fyrir framleiðslu á áfengum drykkjum, á lóðinni Rangárbakki 2, L174561, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.02.2025.
Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn þar sem byggingarleyfi fyrir breyttri notkun hússins hefur ekki enn verið gefið út. Aðilum er bent á að til að unnt verði að gefa út byggingarleyfið þurfa staðfestingar iðnmeistara að liggja fyrir.

Fundi slitið - kl. 10:00.