139. fundur 18. mars 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Laugar 165061 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2503039Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bleikju ehf um leyfi til byggingar á starfsmannaaðstöðu við fiskeldið að laugum. Um er að ræða 85 m² hús skv. aðaluppdráttum frá Arkþing Nordic, dags. 3.3.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Guttormshagi 165083 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2503038Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn félagsbúsins Guttormshaga ehf um leyfi til breytinga á núverandi fjósi. Um er að ræða stækkun og breytingar á fjósi (Mhl 09) í Guttormshaga í Rangárþingi-Ytra. Núverandi fjós er byggt árið 1972. Aðaluppdrættir frá Sigurði Unnar Sigurðssyni dags. 1.3.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Þjóðólfshagi 22 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2503032Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Björgvins Guðbjörnssonar um leyfi til að byggja 116,9 m² frístundahús á lóð 22 í Þjóðólfshaga. Aðaluppdrættir frá Davíð Árnasyni dags. 10.3.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna vélræna loftræstingu.
Vantar að skilgreina hleðslu fyrir rafbíla.

4.Brekkusel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2503043Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Óskars Björnssonar um leyfi til að breyta notkun núverandi frístundahúss í íbúðarhús.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við breytta notkun húsnæðis en telur aðkomu Skipulags- og umferðarnefndar nauðsynlega vegna fjarlægðar frá aðalvegi.

5.Þrúðvangur 6. L164926. Stracta Hótel Mosfell ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2408024Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hreiðars Hermannssonar, kt. 020648-4069 fyrir hönd Stracta Hotel Mosfell ehf., kt. 470406-0380 um starfsleyfis fyrir gistingu á lóðinni Þrúðvangi 6, L164926 , Rangárþingi ytra. Umsókn barst 14.08.2024.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

6.Þrúðvangur 6. L164926. Stracta Hótel Mosfell ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfi

Málsnúmer 2408026Vakta málsnúmer

Sýslumaður Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hreiðars Hermannssonar, kt. 020648-4069 fyrir hönd Stracta Hotel Mosfell ehf., kt. 470406-0380 um reksrarleyfis fyrir reksturs gististaðar í flokki ll, stærra gistiheimili á lóðinni Þrúðvangi 6, L164926 , Rangárþingi ytra. Umsókn barst 14.08.2024.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.