143. fundur 08. maí 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Meðalhraun 20 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2505012

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Kristins Henneberg um leyfi til að byggja 48,0 m² bílgeymslu úr timbri á einni hæð. Aðaluppdráttur frá Gísla G Gunnarssyni, dags. nóv 2024.
Í skipulagi svæðisins er gert ráð fyrir byggingu sumarhúss allt að 160 m². Heildarbyggingarmagn er því orðið 139,6 m². Litið er svo á að það samræmist skilmálum í skipulagi
Byggingaráform eru því samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Geymslan fer u.þ.b. 5 metra út fyrir byggingareit að norðanverðu og fer því ínn á öryggissvæði skilgreinds sprungusvæðis í skipulagi. Ef ekki er unnt að færa geymsluna inn fyrir skilgreindan byggingareit leggur byggingarfulltrúi áherslu á að eigandi beri fulla ábyrgð á þeirri ákvörðun og gæti þetta haft ákvörðun á vátryggingar viðkomandi.
Vantar að sýna gólfniðurfall á grunnmynd bílgeymslu
Vantar að sýna loftræstingu.

2.Hagi lóð 165212 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2505014

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hjartar Sigvaldasonar um viðbyggingu við núverandi sumarhús í samræmi við aðaluppdrætti frá Ragnari Magnússyni, dags. 25.4.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.