150. fundur 23. júlí 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Svínhagi SH 19 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2506078

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Finn Valdemarssonar um leyfi til að byggja 25,6 m² gestahús úr timbri á einni hæð. Aðaluppdráttur frá Kristjáni G. Leifssyni, dags. 10.10.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Um matshluta 01 er að ræða. Ef aðrar byggingar eru þegar komnar ber að ganga frá skráningu þeirra.
Vantar að skilgreina hleðslu rafbíla.

2.Vegamót-Verslun 165172 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2507025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Spóa gistihúss ehf um leyfi til að breyta innra skipulagi og þar með notkun á veitingasal og eldhúsi. Eldhús er hluti af matshluta 03 en verður fært yfir í matshluta 04 veitingasal í samræmi við aðaluppdrætti frá Sædísi Hörpu Albertsdóttur dags. 16.6.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Hvammur 3 164984 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2507026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um leyfi til að byggja stýrihús fyrir hitaveitu vegna Hvammsvirkjunar. Aðaluppdráttur frá Kjartani Sigurbjartssyni Pro-ark dags. 25.4.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Tindasel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2507027

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn DLUX ehf um leyfi til að flytja að og standsetja alls fimm 96,6 m² gestahús úr timbri á einni hæð. Aðaluppdráttur frá PK arkitektar dags. 7.7.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Mælt er með að tæknirými skuli vera sér brunahólf og skilgreint sem slíkt á uppdráttum þar sem fjarlægð frá slökkvistöð er umtalsverð.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um gerð björgunaropa þar sem útlitsmyndir eru afar óskýrar hvað opnanir varðar.
Ekki virðist gert ráð fyrir hleðslu rafbíla.
Um mannvirki í notkunarflokki 4 er að ræða.

5.Hagakrókur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2507031

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hróars Magnússonar um leyfi til að byggja 145,9 m² íbúðarhús úr timbri á steyptum burðareiningum í samræmi við aðaluppdrætti frá Sigurði Unnari Sigurðssyni dags. 10.7.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

6.Vaðalda vindorkuver - Vinnubúðir Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vaðalda vindorkuver - Flokkur 2

2505013

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Borgarverks ehf um uppbyggingu vinnubúða á skilgreindum byggingareit innan Vaðöldusvæðisins. Vinnubúðir eru í tengslum við vegaframkvæmdir á svæðinu og eru samsettar úr alls sextán 2,5x6 m einingum , 12 gistirýmum og kaffiaðstöðu. Aðaluppdrættir frá T.S.V. sf dags. 15.6.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vísað til frekari yfirferðar eldvarnareftirlits.

7.Vaðalda vindorkuver. Ístak hf.. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir vinnubúðum

2507035

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Ístaks hf. um starfsleyfi fyrir reisingu vinnubúða við Vaðöldu, 851 Rangárþingi ytra Beiðni barst 16.07.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

8.Vaðalda vindorkuver. Borgarverk ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir vinnubúðum

2507036

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Borgarverks ehf. um starfsleyfi fyrir reisingu vinnubúða við Vaðöldu, 851 Rangárþingi ytra Beiðni barst 17.07.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

9.Gaddstaðir lóð 48, L222996. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2506060

Sýslumaður Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Víðis Reynis Þórssonar fyrir hönd Dvalans ehf., kt. 600709-0110, um rekstrarleyfi fyrir gistingu á lóðinni Gaddstöðum lóð 48, L222996, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 11.6.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

10.Gaddstaðir lóð 48, L222996. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2506063

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Víðis Reynis Þórssonar fyrir hönd Dvalans ehf., kt. 600709-0110, um starfsleyfi fyrir gistingu á lóðinni Gaddstöðum lóð 48, L222996, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 19.6.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

11.Nes land, L193464. Ovis inn ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2507012

Sýslumaður Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Atla Más Magnússonar fyrir hönd Ovis Inn ehf., kt. 300579-4509, um rekstrarleyfi fyrir gistingu á lóðinni Nes land, L193464, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 03.07.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

12.Vegamót verslun, L165172. Gallerý pizza Landvegamót. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2507015

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Georgs Péturs Brekkan, fyrir hönd Spóa gistihús ehf., kt. 440724-3099 um rekstrarleyfi fyrir reksturs veitijngastaðar í flokki ll-tegund "C" á lóðinni Vegamót verslun við Landvegamót, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 07.07.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

13.Rangárbakki 6. L198623. Árhús. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis með veitingaleyfi

2507028

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hauks Óskarssonar fyrir hönd Árhús ehf., kt. 450224-1380 um rekstrarleyfi með veitingarleyfi í flokki lll, veitingaleyfi - tegund "A" á lóðinni Rangárbakki 6 á Hellu, L198623, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 10.07.2024.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.