153. fundur 03. september 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Sæluvellir 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2509004

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Magnúsar Kristjánssonar um leyfi til að byggja hesthús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 27.8.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Útlitsmyndir eru ekki réttar
Málsetningum á grunnmynd er ábótavant
Vantar að sýna allar innréttingar á salerni
Eldvarnargler vantar í hornglugga á kaffistofu.
Vantar að sýna staðsetningu sniðmyndar.
Vantar innihurðir í hnakkageymslur
Vantar að sýna glugga í hnakkageymslum á útlitsmynd
Merkja skal staðsetningu reykskynjara á grunnmynd.
Merkja skal staðsetningu slökkvitækja á grunnmynd.
Listinn er ekki tæmandi!

2.Efra-Sel 1H, 238382.Umsókn um byggingarleyfi

2508079

Einar biður um flutningsheimild á húsi. Teikningar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 28.ágúst 2025

HH
Lagt fram til kynningar

3.Hvammur III 217091 - Ums??um byggingarleyfi (Ni??if)

2508074

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Skuggabrúnar ehf um leyfi til að rífa og fjarlægja íbúðarhús félagsins, en það hefur verið dæmt óíbúðarhæft og getur valdið hættu vegna ástands þess.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur lagt fram förgunaráætlun
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Stúfholt 4 194719 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2508055

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Rimaskógar ehf um leyfi til að byggja 39,0 m² tvískipt sumarhús úr timbri í samræmi við aðaluppdrætti frá Strendingi ehf, dags. 12.5.2020.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að skilgreina öryggisgler í gólfsíðum gluggum / hurðum.
Vantar að merkja loftræstingu úr salernum.
Vantar að merkja staðsetningu reykskynjara
Vantar að merkja staðsetningu slökkvitækja
Vantar að sýna gólfniðurföll í salernum.

5.Hvammur 3 164984 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2509010

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um uppbyggingu vinnubúða á skilgreindum byggingareit innan Hvamms. Vinnubúðir eru í tengslum við undirbúningsframkvæmdir á svæðinu og eru samsettar úr skrifstofurými, mötuneyti og aðstöðu starfsmanna. Matshlutar eru 39, 40 og 50.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar byggingarlýsingar hvers og eins hluta.
Vantar skráningartöflur fyrir hvern matshluta.
Vantar að sýna fjarlægðir milli bygginga.

6.Árbakki, L218833. Hestvit ehf. Beiðni um endurumsögn vegna rekstrarleyfis

2509005

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Huldu Gústafsdóttur um starfsleyfi fyrir gistingu á lóðinni Árbakki land, L218833, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 02.09.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Hofstígur 31, L227794. Winding river retreat. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2508071

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Rakelar Evu Sævarsdóttur fyrir hönd Vistas ehf., kt. 610225-3289 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki ll-tegund C "minna gistiheimili"á lóðinni Hofstigur 31. L227794, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.08.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

8.Hofstígur 31, L227794. Winding river retreat. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2508082

Heilbrigðiseftirlist Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Rakelar Evu Sævarsdóttur fyrir hönd Vistas ehf., kt. 610225-0390, um starfsleyfi á lóðinni Hofsígur 31, L227794, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 28.08.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

9.Galtalækjaskógur, L165042. Vinjar ehf. Beiðni um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis

2508080

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Skúla Kristófers Skúlasonar, fyrir hönd Vinja. kt. 440522-2700 um endurnýjun starfsleyfis fyrir gistingu vegna eigendaskipta á lóðinni Galtalækjarskógur, L165042, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 28.08.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.