154. fundur 10. september 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Stekkatún, L165446. Aurora Igloos. Beiðni um umsögn fyrir rekstrarleyfi vegna breytingar á starfsemi

2509033

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Árna Freys Magnússonar fyrir hönd Aurora Igloos ehf. kt. 460417-0580 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "D" Gistiskáli á lóðinni Stekkatún 1, L165446, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 09.09.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

2.Stekkatún 1, L165446. Aurora Igloo ehf. Beiðni um umsögn fyrir starfsleyfi vegna breyingar á starfsemi

2506076

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Árna Freys Magnússon, fyrir hönd Aurora Igloos. kt. 460417-0580 um starfsleyfi fyrir gistingu á lóðinni Stekkatúni 1. L165446, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 23.06.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

3.Bjallabrún - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2509016

Eigendur sækja um leyfi til að breyta notkun sumarhúss síns í íbúðarhús.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Hvammur 3 164984 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2509010

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um uppbyggingu vinnubúða á skilgreindum byggingareit innan Hvamms. Vinnubúðir eru í tengslum við undirbúningsframkvæmdir á svæðinu og eru samsettar úr gistieiningum á tveimur hæðum með 44 gistirýmum, búningsaðstöðu á neðri hæð og aðstöðu fyrir starfsfólk á efri hæð. Alls 772,6 m².
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2 og notkunarflokk 4.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.