156. fundur 08. október 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Fjallaland 50 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2411014

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Arnars Páls Michelsen um leyfi til að byggja sumarhús úr timbri skv. aðaluppdráttum frá Pétri H. Ármannssyni, dags. 21.10.2024.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna og skilgreina loftræstingu frá bílgeymslu, eldhúsi og salernum
Vantar frekari skýringar á gangi milli aðalhúss, skúrs og gestahúss að teknu tilliti til efnis, lokunar og brunavarna
Vantar að skilgreina möguleika á hleðslu rafbíla

2.Hraunhamrar 14 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510003

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hauks Ólafssonar um leyfi til að byggja 94,4 m² frístundahús úr timbri í samræmi við aðaluppdrætti frá Halldóri Þór Arnarssyni dags. 20.9.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að skilgreina möguleika á rafhleðslu fyrir rafbíla
Villandi er að merkja lokuð rými sem LR þar sem sú skammstöfun er oftar notuð sem Loftræsting. Ef um vélræna loftræstingu er að ræða skal hún vera merkt á uppdrætti sem VLR.

3.Hofstígur 9 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2510004

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn FA smíði ehf um leyfi til að byggja 46,5 m² frístundahús úr timbri í samræmi við aðaluppdrætti frá Meter teiknistofu dags. 29.9.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Um matshluta 03 er að ræða. Röng merking er í texta byggingarlýsingar.
Vélræn loftræsting skal vera úr eldhúsi og salerni.

4.Norður-Nýibær - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510005

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn N66 ehf um leyfi til að reisa alls 10 gistiskála hver um sig 74,0 m² að stærð. Er í samræmi við aðaluppdrætti frá M11 arkitektum dags. 1.10.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2 en ekki 1 eins og umsaókn segir.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Mjög erfitt er að átta sig á stærð og staðsetningu björgunaropa úr glerhýsum. Óskað er frekari skýringar.
Gerð er krafa um að fjarlægðir milli eininga séu 6 metrar að lágmarki nema hönnuður rökstyðji annað.
Óskað er eftir upplýsingum um glergerð vegna öryggisþátta og brunaálags.

5.Galtalækjaskógur, Langahlíð, L165042. Vinjar ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2509065

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Guðrúnar Jónsdóttur fyrir hönd Vinja ehf ehf. kt. 440522-2700 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "D" gistiskáli, rýmisnúmer 350101 á lóðinni Galtalækjarskógi, L165042, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 18.09.2025. Afgreiðslu frestað á síðasta fundi.
Embætti byggingarfulltrúa staðfestir að ekki hafa verið gerðar breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

6.Norður- Nýibær, L165410. N66 ehf. Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja

2509079

Samgöngustofa óskar eftir umsögn vegna beiðni Loo Eng Wah fyrir hönd N66 ehf. kt. 541216-1700 um leyfi fyrir geymslustað vegna ökutækjaleigu á lóðinni Fögruvellir, L165410, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.09.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá. Um er að ræða matshluta 14 og 16 á reit B3 skv, deiliskipulagi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.