158. fundur 29. október 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Hvammur 3 164984 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2509010

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um uppbyggingu vinnubúða á skilgreindum byggingareit innan Hvamms. Vinnubúðir eru í tengslum við undirbúningsframkvæmdir á svæðinu og eru samsettar úr gistieiningum á tveimur hæðum með 44 gistirýmum, búningsaðstöðu á neðri hæð og aðstöðu fyrir starfsfólk á efri hæð. Alls 772,6 m². Borist hafa uppfærðar teikningar, útgáfa A.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Borg, Þykkvabæ, L165363. Breyting innra skipulags.

2303042

Eigendur sækja um að fá að breyta innra skipulagi íbúðarhúss. Bílgeymsla verði gerð að séríbúð. Inntaksrými sett á milli bygginga. Gögn frá Eflu dags. mars 2023.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna loftræstingu í inntaksrými
Vantar að merkja stærðir björgunaropa á grunnmynd.

3.Kriki 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

2312040

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Reyður Investments ehf um leyfi til að flytja að og standsetja 91,7 m² sumarhús skv. uppdráttum frá ArkForm dags. 20.2.2020. Vegna athugasemda var umsókninn i breytt í íbúðarhús og teikningar uppfærðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að skilgreina texta betur í byggingarlýsingu, staðsetning, upphitun, landnúmer og fl.
Vantar að sýna loftræstingu frá salerni og eldhúsi
Vantar að skilgreina möguleika á hleðslu rafbíla.
Vantar afstöðumyndina.
Vantar að skilgreina öryggisgler í gólfsíðum gluggum og/eða hurðum.

4.Fitjahraun 6 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2510252

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið tilkynningu frá Birni Inga Stefánssyni um staðsetningu á stöðuhýsi skv. meðfylgjandi yfirlitsmynd.
Tilkynning móttekin.
Vísað er í ákvæði úr reglugerð:

Um er að ræða tímabundnar og lausar byggingar sem ekki eru tengdar lagna- eða veitukerfum og ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna lengur en fjóra mánuði á sama stað. Sem dæmi um stöðuhýsi má nefna húsvagna (hjólhýsi og húsbíla) og tjaldhýsi úr léttum byggingarefnum. Séu stöðuhýsi tengd við lagna- eða veitukerfi verða þau byggingarheimildarskyld. Stöðuhýsi þurfa að uppfylla kröfur um fjarlægðarmörk skv. 9.7.5. gr. og aðrar viðeigandi greinar 9. hluta brgl. um brunavarnir.

Gögn sem fylgja skulu tilkynningu
Með tilkynningu til leyfisveitanda samkvæmt 2.3.6. gr. skulu fylgja aðaluppdrættir ásamt greinargerð löggilds hönnuðar á viðkomandi sérsviði. Hönnunargögn skulu vera í samræmi við kröfur 4.2.- 4.5. kafla byggingarreglugerðar. Ef um er að ræða breytingu á þegar byggðu mannvirki þar sem aðaluppdrættir eru til staðar, þarf einungis að afhenda hönnunargögn sem snúa að breytingunni sjálfri.

Á aðaluppdráttum skal umfang og eðli framkvæmdar koma fram með skýrum hætti. Í greinargerð hönnuðar skal sýna fram á að breytingin sé innan þeirra marka sem tilgreind eru í 2.3.6. gr. sem og rökstuðningur fyrir því að breytingin uppfylli kröfur byggingarreglugerðar og samræmist skipulagsáætlunum. Ef framkvæmdin uppfyllir ekki skilyrði 2.3.6. gr., t.d. um stærðarmörk eða aðra skilmála skipulags, þarf að sækja um byggingarheimild eða -leyfi fyrir henni. Ef ekki fylgja tilkynningu fullnægjandi gögn eða þau eru ekki undirrituð af löggiltum hönnuði er eiganda tilkynnt um það og gefinn kostur á að bæta úr. Sé það ekki gert getur leyfisveitandi krafist þess að sótt verði um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni.

Ef fram lögð áform umsækjanda uppfylla ekki ofantalin skilyrði skal sækja um byggingarheimild í samræmi við ákvæði reglugerðar.

5.Hofstígur 9 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2510004

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn FA smíði ehf um leyfi til að byggja 46,5 m² frístundahús úr timbri í samræmi við aðaluppdrætti frá Meter teiknistofu dags. 29.9.2025. Lagðar fram uppfærðar teikningar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

6.Norður-Nýibær - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510005

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn N66 ehf um leyfi til að reisa alls 10 gistiskála hver um sig 74,0 m² að stærð. Er í samræmi við aðaluppdrætti frá M11 arkitektum dags. 1.10.2025. Borist hafa uppfærðar teikningar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2 en ekki 1 eins og umsaókn segir. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Enn er ekki hægt að sjá eiginleika glers varðandi öryggisþætti. Hönnuður verður að sýna fram á að gler uppfylli skilyrði reglugerðar.

7.Sleipnisflatir 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510032

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn G.G. Tré ehf um leyfi til að byggja alls 544 m² iðnaðarhúsnæði á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Larsen ehf dags. 8.10.2025. Borist hafa uppfærðar teikningar
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

8.Klettahraun 16 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510033

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ástu Sverrisdóttur um leyfi til að byggja 52,1 m² frístundahús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Unnari Sigurðssyni dags. 1.10.2025. Borist hafa uppfærðar teikningar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

9.Hróarslækur 164520 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510218

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Gunnars B. Norðdahl um leyfi til að byggja 140,0 m² válaskemmu úr timbri á einni hæð í samræmi við aðaluppdrætti frá SG húsum ehf dags. 23.10.2025.
Byggingarfulltrúi getur ekki samþykkt fram lögð áform þar sem þau samræmast ekki skilmálum gildandi deiliskipulags um byggingartegundir og byggingarmagn á viðkomandi byggingarreit.

10.Faxaflatir 4, L233063. Bæjarins Beztu Pylsur. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2510247

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Bæjarins bestu sf., kt. 600794-2569, um starfsleyfi til reksturs veitingastaðarins Bæjarins Beztu Pylsur á Faxaflötum 4 á Hellu. Beiðni barst 27.10.2025.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu að sinni þar sem ekki hefur farið fram öryggis- eða lokaúttekt á húsnæðinu.

11.Hofstígur 2, L227768. Aurora Sky. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2510256

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Teits Haraldssonar fyrir hönd TSU ehf., kt. 6001091-1460, um starfsleyfi til reksturs gististaðar Aurora Sky á Hofstíg 2 i Rangárþingi ytra. Beiðni barst 28.10.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra er innan deiliskipulagssvæðisins heimilt að vera með gistingu í flokki II sem er gististaður án veitinga. Heimil er gistingu fyrir allt að 10 manns í einu innan hverrar lóðar og að hámarki má vera með gistingu í flokki II í tveimur að þeim sex húsum sem má byggja. Gæta skal þess að gistingin hafi sem allra minnst áhrif á aðra íbúa svæðisins.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.