159. fundur 05. nóvember 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson aðalmaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson byggingarfulltrúi

1.Landhótel. Viðbrögð vegna handriðs.

2510313

HSL fékk ábendingu um slys sem varð hjá heita pottinum á Landhóteli um liðna helgi þegar eintaklingur dettur þegar hann er að fara úr pottinum og hálsbrotnar. Málinu vísað til byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umrædd framkvæmd hefur verið gerð eftir síðustu öryggisúttekt embættisins og þar með hefur ekki fengið neina umfjöllun hvað varðar öryggi og fallvarnir. Umrædd setlaug og tilheyrandi búningsaðstaða eru ekki í samræmi við framlögð gögn hönnuða og hafa þar með ekki fengið neina umfjöllun byggingarfulltrúa.

2.Útskálar 6-8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3

2502053

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Rangárþings ytra um leyfi til byggingar á leikskóla. Leikskólinn er byggður á steyptum undirstöðum og forsteyptum einingum, með 8 deildum og fyrir um 160 börn og 40-50 starfsmenn. Aðaluppdrættir frá ARKIS dags. 12.2.2025
Lagt fram til kynningar.

3.Hofstígur 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2511001

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn FA smíði ehf um leyfi til að byggja 46,5 m² frístundahús úr timbri í samræmi við aðaluppdrætti frá Meter teiknistofu dags. 29.9.2025. Lagðar fram uppfærðar teikningar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Sæluvellir 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2509004

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Magnúsar Kristjánssonar um leyfi til að byggja hesthús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 27.8.2025. Uppfærðar teikningar lagðar fram.
Yfirferð frestað þar sem enn skortir á að uppfylla síðustu athugasemdir.

5.Faxaflatir 4, L233063. Friður ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2511003

Sýslumaður á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Friðar ehf., 520220-2320 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili fyrir rýmisnúmer 0202, 47,5,m², 2 gestir og rýmisnúmer 0203, 47,5m² fyrir 2 gesti á Lóðinni Faxaflatir 4, L233063, F2520089 á Hellu,. Umsókn barst 31.10.2025.
Umrætt húsnæði er á skilgreindu verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Deiliskipulag liggur fyrir af viðkomandi svæði.
Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn um gistirekstur þar sem skilmálar í gildandi deiliskipulagi taka ekki á því. Einungis er um að ræða starfsmannaaðstöðu, verslunar- og veitingastarfsemi á viðkomandi byggingareit.


6.Hofstígur 9, L227775. AURA Retreat Iceland. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2510287

Sýslumaður á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Elvars Þórs Óskarssonar um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili fyrir rýmisnúmer 010101, 26,5m², 2 gestir og rýmisnúmer 020101, 26,5m² fyrir 2 gesti á Lóðinni Hofstígur 9, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 29.10.2025.
Umrædd húsnaði eru á skilgreindu íbúðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.

Í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra er innan deiliskipulagssvæðisins heimilt að vera með gistingu í flokki II sem er gististaður án veitinga. Heimil er gisting fyrir allt að 10 manns í einu innan hverrar lóðar og að hámarki má vera með gistingu í flokki II í tveimur af þeim sex húsum sem má byggja. Gæta skal þess að gistingin hafi sem allra minnst áhrif á aðra íbúa svæðisins.

Byggingarfulltrúi samþykkir umbeðna notkun en bendir á að umrædd húsnæði uppfylla ekki kröfur um algilda hönnun.

7.Gaddstaðir 31, L226269. Gaddstaðir Studio. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2511004

Sýslumaður á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Björns Stefánsssonar fyrir hönd Gaddstaðar ehf., kt. 570220-1010 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili fyrir rýmisnúmer 030101, 17,6 m², fyrir 2 gesti, rýmisnúmer 030102, 16,8m² fyrir 2 gesti og rýmisnúmer 030103, 17,6 m² fyrir 2 gesti á lóðinni Gaddstaðir 31, L226269, F2368622 í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 03.11.2025.
Umrædd húsnæði eru á skilgreindu íbúðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Deiliskipulag liggur fyrir af viðkomandi svæði.
Á íbúðarlóðum í dreifbýli er heimilt að vera með gistingu fyrir allt að 10 manns í flokki I og II skv. reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við umbeðna umsókn.

8.Faxaflatir 4, L233063. Bæjarins Beztu Pylsur. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2510247

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Bæjarins bestu sf., kt. 600794-2569, um starfsleyfi til reksturs veitingastaðarins Bæjarins Beztu Pylsur á Faxaflötum 4 á Hellu. Beiðni barst 27.10.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.