160. fundur 12. nóvember 2025 kl. 08:00 - 09:40 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Rangárflatir 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2505052

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Byggingafélagsins Sandfells ehf um byggingu alls 924,1 m² tveggja gistiskála í samræmi við aðaluppdrætti frá M11 arkitektum dags. 31.3.2025. Uppfærðar teikningar sendar.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Lagfæra þarf texta í byggingarlýsingu þar sem byggingin er ekki hluti af hóteli á lóðinni.
Skipta þarf þakrými upp í tvö brunahólf þar sem heildarstærð þess fer yfir 500 m².
Merkja skal bílastæði á afstöðumuynd sem ætluð eru hreyfihömluðum.
Gerð er krafa um brunahönnun.
Sambrunahætta er á milli herbergja og þurfa því gluggar og hurðir að uppfylla kröfur um brunaálag.
Ósamræmi er í texta og á grunnmynd varðandi þykkt og uppbyggingu brunahólfandi veggja.
Gera þarf grein fyrir handslökkvitækjum.
Merkja þarf fjarlægð á milli húsa.



2.Snjallsteinshöfði 4. Krafa um riftun kaupsamnings.

2504031

Farið yfir stöðu mála og viðbrögð byggingarfulltrúa
Byggingarfulltrúi hefur kynnt sér málavexti og telur engan vafa leika á að aðkoma hans að breytingum á notkun húsnæðis sé alfarið háð ákvörðun eiganda hverju sinni nema að komi í ljós að raunveruleg notkun hússins sé ekki í samræmi við skráningu þess hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

3.Litlavík 199843 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2202035

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn hönnuðar fyrir hönd eiganda um leyfi til að byggja 343,4 m² hesthús og vélaskemmu/vinnustofu á landi sínu, Litlavík, skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Hafsteinssyni Vektor ehf, dags. 4.2.2022. Vinnustofu breytt í íbúð og uppfærðar teikningar í samræmi við það lagðar fram.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Um er að ræða breytingar á þegar samþykktri framkvæmd. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Þar sem brunaálag getur farið yfir 800Mj í vélaskemmu fer byggingarfulltrúi fram á að settir verði samtengdir reykskynjarar í vélaskemmu og íbúð.
Færa þarf handslökkvitæki að útihurð íbúðar.

4.Hólavangur 13. Umsókn um stöðuleyfi

2511093

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ásgeirs Blöndal Steingrímssonar um stöðuleyfi fyrir 20'' gám undir ýmislegt. Umsókn barst 5.11.2025.
Umsókn um stöðuleyfi er synjað.
Byggingarfulltrúi bendir umsækjanda á geymslusvæði sveitarfélagsins.

5.Norður-Nýibær - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2510005

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn N66 ehf um leyfi til að reisa alls 10 gistiskála hver um sig 74,0 m² að stærð. Er í samræmi við aðaluppdrætti frá M11 arkitektum dags. 1.10.2025, br. 11.11.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf inn neyðarlýsingu í anddyri, staðsetningu reykskynjara og handslökkvitækja.
Gólfniðurfall og loftræstingu vantar í tæknirými.

Fundi slitið - kl. 09:40.