162. fundur 26. nóvember 2025 kl. 09:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Stóra-Hæð (L238282) - Umsókn um byggingarheimild eða - leyfi - Flokkur 2

2511222

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar H Ásgeirssonar um leyfi til að byggja 16,4 m² einstaklingsíbúð úr timbri á einni hæð í samræmi við aðaluppdrætti Hannesar Árnasonar, dags.3.11.2025.
Afgreiðslu máls er frestað, athugasemdir sendar á hönnuð.

2.Austvaðsholt 1C (L164965) - Umsókn um niðurrif vegna bruna

2511240

Byggingarfulltrúi hefur móttekið umsókn um niðurrif og förgun á fjósi sem brann aðfaranótt miðvikudagsins 12.11.2025
Byggingaráform eru samþykkt.

3.Hagi lóð, L192681. Lake cabin ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

2511223

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Úlfs Ísfelds Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 300495-2149 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Hagi lóð, L192681, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 24.11.2025.
Umrætt húsnæði er á skilgreindu svæði fyrir frístundabyggð skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Deiliskipulag liggur ekki fyrir af viðkomandi svæði.

Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðra frístundasvæða í sveitarfélaginu nema heimild viðkomandi sumarhúsafélags liggi fyrir og heimild þess efnis liggi fyrir í deiliskipulagi.

Fundi slitið - kl. 10:00.