1.Vaðalda vindorkuver skrifstofur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Málsnúmer 2506038Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Landsvirkjun um breytingu á áður útgefnu byggingarleyfi. Sótt er um 72,2 m² stækkun á skrifstofuhúsnæði á vinnubúðasvæði Vaðöldu í samræmi við uppfærða aðaluppdrætti frá PRO-ARK, dags. 25.9.2025. Heildarstærð hússins eftir stækkun verður 520,5 m².
Samþykkt.
2.Ægissíða 4, Groovy Labs ehf. Stöðuleyfi matarvagn
Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Alex Slusar fyrir hönd Groovy Labs ehf. Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni á bílaplani við Ægissíðu 4, Suðurlandsveg, í samræmi við fylgigögn umsóknar dags. 30.11.2025.
Afgreiðslu umsóknar um stöðuleyfi er frestað. Óskað er eftir viðbótargögnum, þar á meðal umboði lóðareiganda, áður en málið verður tekið til afgreiðslu.
3.Gunnarsholt Frægarður (L164497) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
Málsnúmer 2512036Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Sigríði Halldórsdóttur fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands. Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð (mhl. 04) í samræmi við aðaluppdrætti frá Ask arkitektum, dags. 3.12.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Sambrunahætta er við útvegg á milli matsals og eldhúss.
Brunahólfun vantar við tækjarými.
Staðsetja þarf handslökkvitæki CO2 í tækjarými.

4.Rafholt (L165137) Umsókn um niðurrif vegna foktjóns
Málsnúmer 2512038Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sigurjóns Hjaltasonar um niðurrif og förgun 39,9 m² hesthúss vegna foktjóns.
Umsókn um niðurrif er samþykkt. Farga skal öllu efni á viðurkenndan og lögmæltan hátt.
5.Stóra-Hæð (L238282) - Umsókn um byggingarheimild eða - leyfi - Flokkur 2
Málsnúmer 2511222Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar H Ásgeirssonar um leyfi til að byggja 16,4 m² einstaklingsíbúð úr timbri á einni hæð í samræmi við aðaluppdrætti Hannesar Árnasonar, dags.3.11.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Handlaug vantar á baðherbergi og merkja þarf inn staðsetningu rotþróar á afstöðumynd.

Fundi slitið - kl. 12:00.