164. fundur 22. desember 2025 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Heimir Hafsteinsson aðalmaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Hrafnholt. Umsókn um byggingarleyfi Umfangsflokkur 1.

2302148

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Þorvarðar Björgúlfssonar um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að stærð 231,7 m², samkvæmt uppdráttum frá Kanon arkitektum, dags. 22. febrúar 2023. Þar sem áður samþykkt byggingaráform hafa fallið úr gildi óskar umsækjandi eftir endurupptöku málsins.
Afgreiðslu málsins er frestað, þar sem umsóknin er ekki í samræmi við veitta undanþágu Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Fyrirhuguð stærð sumarhúss er 231,7 m², en samkvæmt bréfi ráðuneytisins nær undanþágan einungis til sumarhúss allt að 140 m².

2.Dynskálar 46 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2512067

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Vigfúsi Halldórssyni, fyrir hönd Reykjagarðs hf. um byggingarleyfi fyrir 4.001,3 m² viðbyggingu við iðnaðarhús. Með umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Balsi ehf., dagsettir 10.11.2025.
Afgreiðslu málsins er frestað.
Athugasemdir verða sendar á hönnuð.

3.Rangá. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2 ,

2208012

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Veiðifélagsins um leyfi til að breyta innra skipulagi og notkun húss úr vélageymslu í starfsmannaaðstöðu, skv. aðaluppdráttum frá Hannesi Árnasyni, dags. 25.7.2022. Lagðir hafa verið fram uppfærðir aðaluppdrættir Hannesar Árnasonar, dags. 23.11.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf grein fyrir uppbyggingu milligólfs, skal vera að lámarki EI60 í notkunarflokki 4.
Allar klæðningar skulu vera í flokki 1.
Sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi.
Sýna þarf staðsetningu stjórnstöðvar brunaviðvörunarkerfis á uppdrætti.
Staðsetja þarf 2x handslökkvitæki við útganga á efri hæð.

4.Ægissíða 4, Groovy Labs ehf. Stöðuleyfi matarvagn

2512037

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Alex Slusar fyrir hönd Groovy Labs ehf. Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni á bílaplani við Ægissíðu 4, Suðurlandsveg, í samræmi við fylgigögn umsóknar dags. 30.11.2025.
Umsókn um stöðuleyfi til 12 mánaða er samþykkt.
Stöðuleyfið tekur gildi þegar leyfisgjald hefur verið greitt.

5.Lækjarstígur 9. Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1 ,

2206071

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Baldurs Á. Steinarssonar um leyfi til að byggja 49,4 m² geymslu á lóð sinni, ásamt 16,5 m² innbyggðu íveruherbergi í samræmi við uppdrætti frá THG arkitektum dags. 1.6.2022. Uppfærðir aðaluppdrættir hafa borist.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Uppfærð skráningartafla hefur borist.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Staðsetja skal handslökkvitæki við útidyr í herbergi.
Öryggisgler skal vera í gólfsíðum glugga og hurð.

6.Lækjarstígur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2103055

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Baldurs Á. Steinarssonar um breytingu á áður útgefnu byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að stærð 107,6 m² á lóðinni Lækjarstíg 9. Sótt er um að bæta við 16,3 m² glerskála, samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum frá THG arkitektum, dags. 18.03.2021.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera skal grein fyrir öryggisgleri.
Uppfæra þarf skráningartöflu, lokað glerhýsi skal skrá sem A-lokun.

7.Rangá veiðihús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2510045

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús (L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Um er að ræða setustofu við syðra gistihúsið, matshluta 02.

Setustofan byggist á milli núverandi gistirýma og er ekki innangengt úr þeim.

Setustofan fær sitt eigið matshlutanúmer.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Þar sem setustofa mun fá sitt eigið matshlutanúmer þarf að brunahólfa setustofu frá öðrum matshlutum og skal hólfum vera a.m.k EI 90.
Brunahólfandi hurðir og eða glugga vantar þar sem rof er í brunahólfun.
Öryggisgler skal vera í gólfsíðum gluggum.
Gólfniðurföll vantar á baðherbergi.

8.Gunnarsholt Miðgarður, L39038. Meðferðarheimilið Lækjarbakki. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2506059

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Daggar Þrastardóttur, fyrir hönd Meðferðarheimilisins Lækjarbakka um starfsleyfi fyrir rekstur á lóðinni Gunnarsholt Miðgarður. L239038, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 4.06.2025.
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra mun veita umsögn samhliða útgáfu öryggis- eða lokaúttektarvottorðs.

9.Hagi lóð, L192681. Lake cabin ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2512094

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Úlfs Ísfeld Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 550523-0350, um starfsleyfi til reksturs gististaðar á Hagi lóð, L192681 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 17.12.2025.
Umrætt húsnæði er á skilgreindu svæði fyrir frístundabyggð skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Deiliskipulag liggur ekki fyrir af viðkomandi svæði. Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðra frístundasvæða í sveitarfélaginu nema heimild viðkomandi sumarhúsafélags liggi fyrir og heimild þess efnis liggi fyrir í deiliskipulagi.

Fundi slitið - kl. 10:00.