1.Hagi lóð 192681 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2512118
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar um leyfi til að breyta notkun sumarhúss síns í íbúð. Um er að ræða 47,9 m² hús úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2.
2.Dynskálar 46 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2512067
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Vigfúsi Halldórssyni, fyrir hönd Reykjagarðs hf. um byggingarleyfi fyrir 4.001,3 m² viðbyggingu við iðnaðarhús. Með umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Balsi ehf., dagsettir 10.11.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
-Skila þarf skýrslu brunahönnuðar þar sem núverandi brunahönnun er ekki fullnægjandi:
Víða er rof í brunahólfun þar sem merkingar vantar við hurðar, glugga ofl,
opnanlegir gluggar geta t.d ekki verið brunahólfandi.
Brunahönnuður talar um svalir en hönnuður gerir ráð fyrir tengigangi.
Reiklosun í þaki á grunnmynd er ekki í samræmi við brunahönnun.
Brunaslöngur þurfa að ná til allra horna, eru samkvæmt lýsingu 25m langar.
Handslökkvitæki (Kolsýra) í tæknirými, og Handslökkvitæki í önnur rými.
-Uppfylla yleiningar í þaki kröfur fyrir 4° þakhalla?
-Ósamræmi er í byggingarlýsingu, loft spörtluð og máluð?
-Skýringar vantar fyrir öll tákn sem sett eru á grunnmynd ofl.
-Gera þarf grein fyrir áætluðum fjölda starfsmanna, salernum og aðstöðu.
-Farið er fram á fund með hönnuðum og er listi yfir athugsemdir er ekki tæmandi.

3.Rangárflatir 6 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2601001
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Jóns Grétars Magnússonar um byggingarheimild fyrir tengigangi með geymslum. Umsóknin er lögð fram í samræmi við aðaluppdrætti Hugrúnar Þorsteinsdóttur hjá M11 arkitektum, dags. 16.12.2025. Tengigangurinn er fyrirhugaður sem framlenging á núverandi norðurljósagangi við Rangárflatir 4, eins og sýnt er á aðaluppdráttum.
Umsókn er synjað, þar sem fyrirhuguð bygging fer út fyrir byggingareit og er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Fundi slitið - kl. 11:00.