1.Landmannalaugar. Umsókn um stöðuleyfi
2601014
Fjallafang ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir 4 amerískar skólarútur til nota sem verslunarvagna í Landmannalaugum L165018, með sama sniði og verið hefur undanfarin ár. Tímabilið er frá 12. júní til 1. október 2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
2.Hróarslækur 164520 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2510218
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Gunnars B. Norðdahl um leyfi til að byggja 140,0 m² vélaskemmu úr timbri á einni hæð í samræmi við aðaluppdrætti frá SG húsum ehf dags. 23.10.2025. Lagðir eru fram uppfærðir aðaluppdrættir dagsettir 6.1.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf handslökkvitæki á grunnmynd.
Breyta þarf texta þar sem vísað er í bílskúr (kemur a.m.k fram á grunnmynd og í skráningartöflu, Útliti, glugga og hurðar). Hönnuður aðaluppdrátta skal einnig leggja mat á það hvort að frárennsli niðurfalla skuli tengjast olíugildru eða olíuskylju sbr. leiðbeiningar umhverfisstofunar.

3.Strönd 164556 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2601013
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna um byggingarheimild fyrir 25m háu fjarskiptamastri úr stáli, í samræmi við umboð lóðarhafa. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá VEB Verkfræðistofu, dagsettir 8.1.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað, þar sem ekki er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppsetningu fjarskiptamasturs. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
4.Tindasel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
2509054
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Deluxe Lodges ehf um leyfi til að breyta hlöðu á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Úti/Inni arkitektum dags. 1.9.2025.
Núverandi "hlöðu" breytt - sett milligólf og komið fyrir 5 herbergjum á efri hæð en móttöku, setustofu og veitingasal (einungis fyrir hótelgesti) á jarðhæð. Eldhús uppfært sem fullgilt framleiðslueldhús ostigi að kjallara og komið fyrir starfsmannaðstöðu ofl. Lagðir hafa verið fram uppfærðir aðaluppdrættir vegna athugasemda sem gerðar voru á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24.9.2025.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Taka þarf út eða lagfæra texta sem vísar í 40" gám sem inngang fyrir kjallara.
Sýna þarf stiga á grunnmynd kjallara.
Bæta þarf við herbergi með aðgengi fyrir alla sbr. heildarfjölda gistiherbergja.
Brunaviðvörunarkerfi skal taka mið af algildri hönnun (laga þarf byggingarlýsingu).
Laga þarf almennt merkingar á björgunaropum og taka út "slysamerkingar".

5.Rangá veiðihús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
2510045
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús(L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu setustofu á milli núverandi gistirýma.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf brunahólfun á milli herbergja (mhl.03, rými 0102).
Gera þarf grein fyrir sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi, sbr 9.4.2 gr. byggingarreglugerðar 112/2012.

6.Vaðalda vindorkuver. Landsvirkjun. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir mötuneyti
2601019
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir reksturs mötuneytis við Vaðöldu vindorkuveri, 851 Rangárþingi ytra. Beiðni barst 12.01.2026.
Afgreiðslu frestað þar sem fullnægjandi gögn vegna lokaúttektar hafa ekki borist.
Fundi slitið - kl. 10:30.