167. fundur 28. janúar 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Faxaflatir 4. Veitingastaður. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi -

2305013

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn N66 ehf. um byggingarleyfi til byggja 248,8m² veitingastað með tveimur íbúðum fyrir starfsfólk á efri hæð á lóð sinni, Faxaflötum 4, skv. aðaluppdráttum frá Mannvirkjameistaranum, dags. 3.10.2023. Lagðir hafa verið fram uppfærðir aðaluppdrættir Sigurðar Unnars Sigurðssonar.
Uppfærðir aðaluppdrættir eru samþykttir.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Efri-Rauðalækur land 205549 - Flokkur 1

2601040

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Túnþökuþjónustunnar ehf. um byggingarheimild fyrir 567.7m² vélaskemmu á landi sínu, Efri-Rauðalækur land. Umsóknin er lögð fram í samræmi við aðaluppdrætti frá Hallgrími Inga Jónssyni, dags. 29.12.2025
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf grein fyrir olíuskilju.
Fjölga þarf reykskynjurum.

3.Landmannalaugar. Umsókn um stöðuleyfi

2601014

Fjallafang ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir 4 amerískar skólarútur til nota sem verslunarvagna í Landmannalaugum L165018, með sama sniði og verið hefur undanfarin ár. Tímabilið er frá 12. júní til 1. október 2026.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir fjórar amerískar skólarútur er samþykkt.
Stöðuleyfið gildir fyrir tímabilið 12. júní til 1. október 2026.

4.Faxaflatir 2a - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Faxaflatir 2a - Flokkur 2

2511142

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um byggingarleyfi til að byggja 414,7 m² þjónustuhús ásamt 24,4 m² geymslu úr steinsteypu í samræmi við aðaluppdrætti frá Ivon Stefáni Cilia, T.ark arkitektum dags.12.11.2025. Uppfærðir aðalupprættir bárust 26.1.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Rangárflatir 6 - Flokkur 1

2601069

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Byggingarfélagsins Sandfells ehf. um byggingarheimild fyrir 567,7m² vörugeymslu á lóð sinni. Umsóknin er lögð fram í samræmi við aðaluppdrætti Hugrúnar Þorsteinsdóttur hjá M11 arkitektum, dags. 8.5.2025.
Afgreiðslu málsins er frestað. Gera þarf fullnægjandi grein fyrir öðrum mannvirkjum á viðkomandi lóð og afla tilskilinna leyfa áður en málið verður tekið til frekari afgreiðslu.

6.Borgarbraut 4. L214027. Seafront ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2601039

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Priyanka Thapa fyrir hönd Icehorse ehf., kt. 4311210500 um starfsleyfi til útleigu 3 húsa á Borgarbraut 4, Þykkvabæ i Rangárþingi ytra. Beiðni barst 15.1.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá. Byggingarfulltrúi staðfestir að tiltekin starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir við fyrirhugaða notkun.

Fundi slitið - kl. 10:00.