168. fundur 04. febrúar 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Lýtingsstaðir - Umsókn um stöðuleyfi Gestahús, vinnuskúr í smíðum eftir tjón

2601356

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið erindi frá Sigurjóni Eiríkssyni þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir gestahúsi eða vinnuskúr í smíðum á jörðinni Lýtingsstöðum. Húsið varð fyrir tjóni við flutning og þarfnast viðgerðar. Gert er ráð fyrir að húsið verði síðar flutt á lóð Lýtingsstaða 6 að viðgerðum loknum.
Umsókn um stöðuleyfi til 12 mánaða er samþykkt. Stöðuleyfið tekur gildi þegar leyfisgjald hefur verið greitt.

2.Dynskálar 51. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

2303090

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn G.G.Tré ehf um leyfi til að byggja alls 1156,0 m² iðnaðarhúsnæði á lóðinni Dynskálum 51 á Hellu, skv. uppdráttum frá Larsen dags. 27.3.2023. Um er að ræða iðnaðarhús úr Límtré með 8 aðskildum bilum og möguleika á millilofti í hverju bili. Lagðir eru fram uppfærðir aðaluppdrættir þar sem rými 0102, 0103, 0104, 0111, 0112 og 0113 eru sameinuð undir einn notanda.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir verða sendar á hönnuð.

3.Rangá veiðihús - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

2510045

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús(L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu setustofu á milli núverandi gistirýma.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:00.