1.Tindasel 1 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
2602004
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sigurðar Sindra Magnússonar, fyrir hönd Deluxe Lodge, um niðurrif á 83,2 m² íbúðarhúsi sem byggt var árið 1946. Í umsókninni kemur fram að undirstöður mannvirkisins séu lélegar og að gólf hafi sigið.
2.Jórkelda (L237934) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602011
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Kristjáns Georgs Leifssonar, fyrir hönd Róberts Andersen, um byggingarheimild fyrir 27,6 m² gestahúsi á landi Jórkeldu (L237934), samkvæmt aðaluppdráttum sínum, dagsettum 7.1.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Obbugarður - Ægisíða 4 Umsókn um stöðuleyfi
2602025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Hellunum við Hellu ehf. um stöðuleyfi fyrir tveimur 20 feta gámum á lóðinni Obbugarði, í samræmi við meðfylgjandi afstöðumynd.
Afgreiðslu máls vegna umsóknar um stöðuleyfi fyrir tveimur gámum er frestað. Samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd eru gámar staðsettir innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Áður en málið verður tekið til frekari afgreiðslu skal liggja fyrir umsögn Vegagerðarinnar.
4.Akurbrekka (L177460) Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602032
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Eiríki Vigni Pálssyni hjá Pró-Ark, fyrir hönd Ingva Jónssonar, um byggingarheimild til að byggja við núverandi íbúðarhús á mhl. 01 á jörðinni Akurbrekku. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á tveimur hæðum ásamt tengigangi, alls 170,6 m², samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dagsettum 9.2.2026. Heildarstærð hússins eftir stækkun verður 287,1 m².
Þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir er afgreiðslu málsins frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Rangárbakki 8B - Flokkur 1
2602033
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ragnars Kristins Lárussonar, fh. Húsvakurs ehf., um byggingarleyfi fyrir 28 gistihúsum (alls 30 gistiherbergjum) og tveimur salernishúsum á lóðinni Rangárbakka 8B, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 28.1.2025.
Þar sem fjöldi gistihúsa er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag er afgreiðslu málsins frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
6.Vaðalda vindorkuver. Landsvirkjun. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir mötuneyti
2601019
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir reksturs mötuneytis við Vaðöldu vindorkuveri, 851 Rangárþingi ytra.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Borgarbraut 4, L214027. Seafront Lodge. Beiðni um umsögn vegna reksrarleyfis
2601075
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Henriks Amby Jensen fyrir hönd LIcehorse ehf., kt. 431121-0500 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "G" íbúðir á lóðinni Borgarbraut 4, L214027, rýmisnr. 010101 í Rangárþingi ytra. Hámarksfjöldi gesta er 16. Umsókn barst 28.1.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
8.Ármót, L164471. Ármót ferðaþjónusta ehf. Beiðni um umsögn vegna breytingu á gildandi rekstarleyfis
2602030
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hafliða Þ. Halldórssonar fyrir hönd Ármót ehf., kt. 420817-1770 um breytingu árekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki IV, tegund "B" stærra gistiheimili á lóðinni Ármót, L164471, rýmisnr. 020101 (300 m² gistihús), 12 gestir, 110101 (110 m² íbúð), 3 gestir, 170101 (40 m² gestahús), 3 gestir og 180101 (40 m² gestahús), 3 gestir. Hámarksfjöldi gesta fer úr 10 i 21 gest. Umsókn barst 09.02.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er heimild fyrir 20 gistiplássum á umræddri lóð (VÞ11).
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur lagt fram förgunaráætlun
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.