1.Obbugarður - Ægisíða 4 Umsókn um stöðuleyfi
2602025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Hellunum við Hellu ehf. um stöðuleyfi fyrir tveimur 20 feta gámum á lóðinni Obbugarði, í samræmi við meðfylgjandi afstöðumynd.
Þar sem umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulag er afgreiðslu málsins frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
2.Meiri-Tunga 1 201366 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2602058
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Árna Friðrikssyni, fyrir hönd Bjarna Valtýssonar, um byggingarheimild til að reisa 200 m² geymslu og verkstæði á lóðinni Meiri-Tungu lóð 1. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá ASK arkitektum, dagsetta 12.2.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi á viðkomandi svæði. Málinu er vísað til umfjöllunar og afgreiðslu Skipulags- og umferðarnefndar.
3.Efri-Strönd - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602057
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Val Arnarssyni, fyrir hönd Jóhanns Sigurðssonar og Margrétar Árnadóttur, um byggingarheimild til að reisa 277,2 m² geymslu með hesthúsi á jörðinni Efri-Strönd. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá Cedrus ehf., dagsetta 1.12.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi á viðkomandi svæði. Málinu er vísað til umfjöllunar og afgreiðslu Skipulags- og umferðarnefndar.
4.Dynskálar 51. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
2303090
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn G.G.Tré ehf um leyfi til að byggja alls 1156,0 m² iðnaðarhúsnæði á lóðinni Dynskálum 51 á Hellu, skv. uppdráttum frá Larsen dags. 27.3.2023. Um er að ræða iðnaðarhús úr Límtré með 8 aðskildum bilum og möguleika á millilofti í hverju bili. Lagðir eru fram uppfærðir aðaluppdrættir þar sem rými 0102, 0103, 0104, 0111, 0112 og 0113 eru sameinuð undir einn notanda. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 14.2.2026.
Samþykkt.
5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Efri-Rauðalækur 165076 - Flokkur 1
2602018
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Þorgeiri Óskari Margeirssyni, fyrir hönd Takthesta ehf., um byggingarheimild vegna breytinga á hesthúsi. Breytingarnar felast í því að kaffiaðstaða, sem áður tilheyrði hesthúsi á mhl. 04, verður breytt í eldhús, salerni, þvottahús og gang sem tengdur verður við núverandi íbúð. Jafnframt verður hurð sem áður aðskildi hesthús og kaffiaðstöðu lokað.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf grein fyrir aðstöðu sem áður var í hesthúsi.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Efra-Fjallaland 8 - Flokkur 1
2602067
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ásgeirs Ásgeirssonar, fh. Einars Hanssonar, um byggingarheimild til byggingar 120,4 m² sumarbústaðar á lóðinni Efra-Fjallaland 8, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum T.ark arkitekta, dags. 19.2.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
7.Vaðalda vindorkuver. Landsvirkjun. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis fyrir mötuneyti
2601019
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Landsvirkjunar um starfsleyfi fyrir reksturs mötuneytis við Vaðöldu vindorkuveri, 851 Rangárþingi ytra.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

8.Gaddstaðir lóð 1B, L164597. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2602060
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Samúels Arnar Erlingssonar fyrir hönd Tal og tóna slf., um starfsleyfi til reksturs gististaðar á Gaddstöðum lóð B, L64597 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 19.02.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
9.Auðkúla, L165448. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2602059
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Páls Benediktssonar fyrir hönd Auðkúlu Hellu ehf., kt. 690420-0820, um starfsleyfi til reksturs gististaðar á Auðkúlu, L165448 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 19.02.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Fundi slitið - kl. 10:30.