1.Þrúðvangur 20 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2603027
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðjóns Magnússonar, fh. Jónínu Ragnheiðar Grímsdóttur, um byggingarleyfi vegna breytinga á innra fyrirkomulagi á 1. hæð að Þúðvangi 20, þar sem atvinnurými er breytt í bílgeymslu, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 4.3.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
2.Veiðivötn - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603029
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bents Larsen Fróðasonar, fh. Veiðifélags Landmannaafréttar, um byggingarheimild til byggingar 37,3 m² veiðihúss (mhl. 25) á Landmannaafrétti, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum umsækjanda, dags. 8.1.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem skilmálar í gildandi deiliskipulagi eru óljósir, en þar kemur fram að gistiskálar skuli að jafnaði vera 25 - 30 m² að stærð. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
3.Obbugarður - Ægisíða 4 Umsókn um stöðuleyfi
2602025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn frá Hellunum við Hellu ehf. um stöðuleyfi fyrir tveimur 20 feta gámum á lóðinni Obbugarði. Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar til umfjöllunar.
Skipulags- og umferðarnefnd tók erindið fyrir og taldi að áform umsækjanda þyrftu að vera í fullu samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Þar sem unnið er að breytingum á deiliskipulagi fyrir svæðið mæltist nefndin til þess að staðsetning og skilgreining umræddra geymslna yrði tekin til skoðunar í þeirri vinnu. Nefndin taldi ekki unnt að fallast á að um stöðuleyfi væri að ræða og hafnaði erindinu.

Með vísan til afgreiðslu skipulags- og umferðarnefndar og þar sem áform umsækjanda samræmast ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins synjar byggingarfulltrúi erindinu um stöðuleyfi.
4.Gunnarsholt 164495 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
2501059
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Barna- og foreldrastofu um leyfi til breytingar á núverandi húsnæði til að hýsa meðferðarúrræði fyrir ungmenni. Framkvæmd fellst í að mæta kröfum brunahönnunar og aðlaga að neyðarvistun fyrir ungmenni og er skv. aðaluppdráttum frá Batteríinu, dags. 21.1.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 6.3.2026
Afgreiðslu málsins er frestað og athugasemdir verða sendar til hönnuðar.
5.Gunnarsholt Frægarður 164497 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603034
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sigurðar Unnars Sigurðssonar, fh. Lands og skógar ehf., um byggingarheimild til byggingar um 15,5 m hás fóðurturns á steyptum undirstöðum við suðausturenda Frægarðs, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 9.2.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
6.Rangárbakki 2. L174567. Öldur ehf. Beiðni um endurumsögn vegna starfsleyfis
2603035
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Helga Þóris Sveinssonar, kt. 1601882009-3569 fyrir hönd Öldurs ehf., kt. 510417-0380 um endurnýjun á starfsleyfi fyrir framleiðslu á áfengum drykkjum, á lóðinni Rangárbakki 2. L174567, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 09.03.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Faxaflatir 4, L233063. Faxaflatir Aparments. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2603036
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Friðar ehf., kt.52020-2320, um starfsleyfi til reksturs gististaðar í tveimur íbúðum á Faxaflötum 4 á Hellu. Beiðni barst 10.03.2026.
Umrætt húsnæði er á skilgreindu verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Deiliskipulag liggur fyrir af viðkomandi svæði. Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn um gistirekstur þar sem skilmálar í gildandi deiliskipulagi taka ekki á því. Einungis er um að ræða starfsmannaaðstöðu, verslunar- og veitingastarfsemi á viðkomandi byggingareit.
Fundi slitið - kl. 10:00.