1.Minna-Hof lóð 4 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603048
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, fh. Sigurðar Óla Ingvarssonar, um byggingarheimild til byggingar 48 m² bílskúrs með geymslukjallara, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 13.3.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
2.Strönd 164556 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2601013
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Íslandsturna um byggingarheimild fyrir 25 m háu fjarskiptamastri úr stáli, í samræmi við umboð landeiganda. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá VEB verkfræðistofu, dags. 8.1.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppsetningu fjarskiptamasturs. Skipulags- og umferðarnefnd tók erindið til umfjöllunar, grenndarkynning fór fram og niðurstaða nefndarinnar var samþykkt í sveitarstjórn. Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Gerður er sá fyrirvari að staðsetning mastursins verði skilgreind og færð inn við gerð deiliskipulags fyrir svæðið þegar sú vinna fer fram.

3.Rangárstígur 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2602061
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hannesar Árnasonar, fh. Veiðifélags Ytri-Rangár, um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar veiðihúss í frístundarhús, samkvæmt aðaluppdráttum, dags. 3.10.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
4.Rangárstígur 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 1
2602009
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ingvars Elíassonar um byggingarleyfi til að breyta núverandi baðhúsi í sumarhús til einkanota, samkvæmt aðaluppdráttum Hannesar Árnasonar, dags. 10.12.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Laga þarf þykkt einangrunar þakvirkis í byggingarlýsingu.
Skilgreina þarf hæð setlaugar.

5.Hali, L165389. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2602062
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Finnboga Jóhanns Jónssonar um starfsleyfi til reksturs fyrir þvott og pökkun á kartöflum í Hala, matshluti 170101 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 19.02.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 09:30.