1.Miðvangur, Hella. Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn
2603067
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Atla Lilliendahl um stöðuleyfi fyrir 6 metra matarvagni á lóðinni Miðvangi á Hellu frá 1 maí til 1 nóvember. Umsókn barst 23.03.2026.
Umsókn um stöðuleyfi til 6 mánaða er samþykkt. Stöðuleyfið tekur gildi þegar leyfisgjald hefur verið greitt.
2.Þrúðvangur 20 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2603027
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Guðjóns Magnússonar, fh. Jónínu Ragnheiðar Grímsdóttur, um byggingarleyfi vegna breytinga á innra fyrirkomulagi á 1. hæð að Þúðvangi 20, þar sem atvinnurými er breytt í bílgeymslu, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 4.3.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir svæðið. Skipulags- og umferðarnefnd tók erindið til umfjöllunar og taldi ekki þörf á grenndarkynningu vegna breytinganna. Jafnframt lagði nefndin til að gerð yrði breyting á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi sveitarfélagsins þannig að hún yrði færð aftur til íbúðanotkunar, en taldi rétt að bíða með þá breytingu þar til ákvörðun um endurskoðun aðalskipulagsins liggur fyrir.
Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gönguhurð á milli bílgeymslu og íbúðar skal vera EICS 60.
Sambrunahætta er á milli bílgeymslu og herbergis.

3.Landmannalaugar, L165018. Umsókn um stöðuleyfi fyrir geymsluskúr
2603069
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ferðafélags Íslands um 12 mánaða framlengingu á tímabundnu stöðuleyfi fyrir smáhýsi við hlið salernishúss í Laugum. Um er að ræða 12?15 m² timburhús sem nýtt er til geymslu fyrir farangur og mat fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Leyfið var áður veitt tímabundið til loka september 2025 að undangenginni umsögn skipulags- og umferðarnefndar, sem gerði ekki athugasemdir við uppsetningu mannvirkisins. Umsækjandi óskar nú eftir framlengingu leyfisins til áframhaldandi notkunar.

Umsókn um stöðuleyfi til 12 mánaða er samþykkt. Stöðuleyfið tekur gildi þegar leyfisgjald hefur verið greitt.
4.Áströð 7 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603063
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Sigurðar Unnars Sigurðssonar, fh. Magneu Auðar Gísladóttur, um byggingarheimild til byggingar 56,4 m² gestahúss á lóðinni Áströð 7, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 15.3.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 25.3.2026 og afgreiðslu þess frestað þar sem þakgerð var ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Athugasemdir voru sendar til hönnuðar og bárust uppfærðir aðaluppdrættir 25.3.2026.
Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 25.3.2026 og afgreiðslu þess frestað þar sem þakgerð var ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Athugasemdir voru sendar til hönnuðar og bárust uppfærðir aðaluppdrættir 25.3.2026.
Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf grein fyrir uppbyggingu byggingarhluta, þ.e þykkt einangrunar og timurvirkis í gólfi, veggjum og þaki.
Gera þarf grein fyrir útloftun baðhebergis.
Gera þarf grein fyrir útsogi frá eldhúsi.

5.Sæluvellir 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2509004
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Magnúsar Kristjánssonar um leyfi til að byggja hesthús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 27.8.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 31.3.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Sambrunahætta er á milli hurða í útvegg við heygeymslur, brunahólfandi hurðir vantar.

6.Hagi lóð (L165217) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603077
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hannesar Árnasonar, fh. Fanneyjar Pétursdóttur, um byggingarheimild til stækkunar sumarhúss á lóðinni Haga lóð (L165217), þannig að heildarstærð þess eftir stækkun verði 72,7 m², samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 22.12.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
7.Obbugarður, L237102. American SchoolBus Cafe. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2603080
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Alexandru Daniel Slusar fyrir hönd Groovy Labs ehf., kt. 421224-1530, um starfsleyfi vegna eigendaskipta til reksturs American SchoolBus Cafe á Obbugarði. Beiðni barst 26.03.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun vagnsins og gerir því ekki athugasemdir við veitingu starfsleyfis fyrir umrædda starfsemi. Deiliskipulag fyrir viðkomandi svæði er í vinnslu og stöðuleyfi er í gildi.
Byggingarfulltrúi áréttar að umsækjandi ber ábyrgð á að vagninn uppfylli kröfur um brunavarnir og séu fullnægjandi með tilliti til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Jafnframt er áréttað að neysluvatn á staðnum skuli uppfylla kröfur um gæði vatns samkvæmt reglugerð nr. 536/2001, með síðari breytingum.

Fundi slitið - kl. 10:00.