178. fundur 04. maí 2026 kl. 07:00 - 08:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Sleipnisflatir 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

2510032

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn G.G. Tré ehf um leyfi til að byggja alls 544 m² iðnaðarhúsnæði á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Larsen ehf dags. 8.10.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 24.4.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2.

2.Brekkusel 1 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

2512035

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Óskars Björnssonar um byggingarheimild til byggingar 30,5 m² aðstöðuhúss með geymslu á lóðinni Brekkuseli 1, samkvæmt aðaluppdráttum Hannesar Árnasonar, dags. 28.6.2023. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 28.2.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Hofstígur 21 (L227787) - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

2604048

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigfúsar Halldórssonar, fh. Lauru Diehl, um byggingarleyfi fyrir byggingu íbúðarhúss á lóðinni Hófstíg 21 (L227787), samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum Balsa ehf., dags. 28.4.2026. Umsókninni hefur verið breytt frá fyrri umsókn, dags. 16.4.2026, þar sem áður var sótt um byggingu 43,5 m² gestahúss.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Hagakrókur (Akrar - L240792)- Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2412019

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hróars Magnússonar um leyfi til að byggja 2 stk 24,3 m² gistiskála skv. aðaluppdráttum frá Sigurði Unnari Sigurðssyni. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 28.4.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1.

Fundi slitið - kl. 08:00.