179. fundur 13. maí 2026 kl. 07:00 - 09:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Hvammur 3 Vinnubúðir Fossvéla L164984 (mhl. 31) - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2604053Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Valgeirs Bergs Steindórssonar, f.h. Fossvéla ehf., um byggingarheimild fyrir 215,6 m² vinnubúðum með 14 gistieiningum í mhl. 31 á lóðinni Hvammur 3, í tengslum við Hvammsvirkjun, samkvæmt aðaluppdráttum frá ARKAMON, dags. 17.4.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Lýtingsstaðir 6 (L237081) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2604076Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Arndísar Hrefnu Sigurjónsdóttur um byggingarheimild til byggingar 251,3 m² skemmu úr stálgrind á landinu Lýtingsstöðum 6, samkvæmt aðaluppdráttum Knúts Emils Jónassonar, dags. 8.4.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Meiri-Tunga 1 201366 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2602058Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Árna Friðrikssonar, fh. Bjarna Valtýssonar, um byggingarheimild til byggingar 200 m² geymslu og verkstæðis á lóðinni Meiri-Tungu lóð 1, samkvæmt aðaluppdráttum ASK arkitekta, dags. 12.2.2026.



Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og afgreiðslu þess frestað þar sem deiliskipulag er ekki í gildi á svæðinu. Málinu var vísað til skipulags- og umferðarnefndar, sem taldi áformin samræmast stefnu aðalskipulags varðandi landnotkun og lagði til að byggingaráformin yrðu grenndarkynnt.



Grenndarkynning fór fram með fresti til athugasemda til og með 7. apríl 2026 og bárust engar athugasemdir.



Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf veggeingar á milli inngangshurða EI 60.
Reykskynjara vantar á grunnmynd (a.m.k 2 stk. í hvort bil).

4.Sæluvellir 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2509004Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Magnúsar Kristjánssonar um leyfi til að byggja hesthús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Kristjáni Andréssyni dags. 27.8.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 21.4.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

5.Gunnarsholt 164495 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2501059Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Barna- og foreldrastofu um leyfi til breytingar á núverandi húsnæði til að hýsa meðferðarúrræði fyrir ungmenni. Framkvæmd fellst í að mæta kröfum brunahönnunar og aðlaga að neyðarvistun fyrir ungmenni og er skv. aðaluppdráttum frá Batteríinu, dags. 21.1.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 7.5.2026.
Samþykkt.

6.Efri-Rauðalækur (L165076) - Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis.

Málsnúmer 2605020Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Evu Dyröy fyrir hönd Takthesta ehf., kt. 570807-1960, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á Efr-Rauðalæk, rýmisnúmer 110103 fyrir 6 gesti. Umsókn barst 8.5.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Ármót, L164471. Ármót ferðaþjónusta. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2605005Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Hafliða Þ. Halddórssonar fyrir hönd Ármóta ferðaþjónustu ehf., kt., 420817-1770 um starfsleyfi til reksturs gististaðar við Ármót, matshlutanúmer 02101, 110101, 170101, 180101 með alls 21 gistipláss í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 05.05.2026
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 09:00.