180. fundur 20. maí 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Hvammur 3 Vinnubúðir Fossvéla L164984 (mhl. 31) - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2604053Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Valgeirs Bergs Steindórssonar, f.h. Fossvéla ehf., um byggingarheimild fyrir 215,6 m² vinnubúðum með 14 gistieiningum í mhl. 31 á lóðinni Hvammur 3, í tengslum við Hvammsvirkjun, samkvæmt aðaluppdráttum frá ARKAMON, dags. 17.4.2026. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 7.5.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.

2.Beindalsholt (L194943) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2605027Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Mardísar Möllu Andersson, fh. Massa ehf., um byggingarheimild til byggingar tveggja 28 m² gestahúsa úr timbri, samkvæmt aðaluppdráttum Vektor hönnunar og ráðgjafar, dags. 12.5.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Auka þarf einangrun í gólfum.
Málsetja þarf stærðir björgunaropa.

3.Hofstígur 8 (L227774) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Friðriks Ólafssonar, fh. FA smíði ehf., um byggingarheimild til byggingar tveggja 46,5 m² gestahúsa á einni hæð úr timbri, samkvæmt aðaluppdráttum Meter teiknistofu, dags. 6.5.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Matshlutanúmer þurfa að vera 01 og 02.
Taka þarf út af afstöðumynd hús sem ekki er til umfjöllunar.

4.Klettur, L235198. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ásdísar Ýr Aradóttur um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" Minna gistiheimili að Kletti, rýmisnúmer 010101 fyrir 6 gesti, í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 9.5.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

5.Veiðivötn, L176553. Veiðifélag Landmannaafréttar.. Beiðni um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis

Málsnúmer 2605033Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hafsteins Jóhanns Hannessonar fyrir hönd Veiðifélags Landmannaafréttar um endurnýjun á leyfi fyrir gistingu í 16 húsum ásamt salernis- og sturtuhúsi í Veiðvötnum í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 7.5.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

6.Akrar, L240792. Hagakrókur. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2605037Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hróars Magnússonar fyrir hönd Hagakróks ehf., kt. 630823-0130, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "F" Frístundahús að Ökrum, rýmisnúmer 010101 fyrir 2 gesti og 020101 fyrir 2 gesti. Umsókn barst 8.5.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

7.Ægissíða 4, L237101. Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2604069Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Hellinum ehf. um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóðinni Ægissíðu 4 við Skútann í samræmi við meðfylgjandi afstöðumynd. Beiðni barst 24.apríl.2026.
Fallist er á að veita stöðuleyfi til 12 mánaða fyrir staðsetningu gámsins samkvæmt framlagðri afstöðumynd.

Huga þarf að framtíðaruppbyggingu svæðisins og vinna deiliskipulag fyrir svæðið áður en til frekari uppbyggingar eða framlengingar leyfis kemur.

Fundi slitið - kl. 10:00.