181. fundur 27. maí 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Akbraut lóð 219810 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif fjós að hluta mhl. 02)

2605029

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Jörgens Rúnars Hrafnkellssonar, fh. Landsvirkjunar, um byggingarleyfi fyrir niðurrifi fjóss á lóðinni Akbraut (L219810). Undirstöður mannvirkisins verða ekki fjarlægðar þar sem fyrirhugað er að nýta þær síðar
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu. -Byggingarstjóri hefur lagt fram förgunaráætlun -Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Hólahraun 4 (L198094) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

2605059

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigfúsar Halldórssonar, fh. Guðmundar Alfreðssonar, um byggingarheimild til stækkunar sumarhúss, samkvæmt aðaluppdráttum Balsa ehf., dags. 20.5.2026. Heildarstærð hússins verður 108,2 m² eftir stækkun.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Minna-Hof lóð 4 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

2603048

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, fh. Sigurðar Óla Ingvarssonar, um byggingarheimild til byggingar 48 m² bílskúrs með geymslukjallara á lóðinni Minna-Hofi lóð 4, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 13.3.2026.



Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar, sem samþykkti að áformin yrðu grenndarkynnt. Grenndarkynning fór fram frá 14. apríl til 12. maí 2026 og bárust engar athugasemdir.



Skipulags- og umferðarnefnd gerði ekki athugasemdir við erindið en taldi eðlilegt að unnið yrði deiliskipulag fyrir svæðið. Málinu var í framhaldi vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
6 kg. handslökkvitæki vantar á grunnmynd.
Gera þarf grein fyrir eldvarnargleri í glugga.

4.Ársel - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2506077

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Þorsteins Aðalsteinssonar um byggingarheimild til stækkunar núverandi gestahúss þannig að heildarstærð þess verði 44 m², ásamt byggingu annars 9,3 m² gestahúss úr timbri, samkvæmt aðaluppdráttum Hannesar Árnasonar hjá BIRKO, dags. 14.8.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
6 kg. handslökkvitæki vantar á grunnmynd.
Auka þarf þykkt einangrunar í gólfi og í þaki.

5.Klettur, L235198. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2605046

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Ásdísar Ýr Aradóttir um leyfi fyrir gistingu fyrir 6 gesti, rýmisnúmer 010101 að Kletti í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 18.5.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

6.Suðurlandsvegur 1-3, Miðjan, L219041. Apótekarinn Hella.Beiðni um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis

2605062

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir endurnýjun á umsögn vegna beiðni Lyf og heilsu hf. um leyfi fyrir afgreiðslu á lyfjum og almennum vörum á fyrstu hæð, rýmisnúmer xxxxx í Miðjunni á Hellu. Beiðni barst 26.5.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Geysisflatir L226662. Tjaldsvæðið á Hellu. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2605066

Heilbrigðiseftirlist Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Þorgerðar Jónu Guðmundsdóttur fyrir hönd Southcoast Adventure ehf., kt. 691111-1720, um starfsleyfi á lóðinni Geysisflatir L226662, tjaldsvæði, Rangárþingi ytra. Tímabilið er út árið 2026, umsókn barst 26.05.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.