1.Tindasel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
2509054
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Delux Lodges ehf um leyfi til að breyta hlöðu á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Úti/Inni arkitektum dags. 1.9.2025.
Núverandi "hlöðu" breytt - sett milligólf og komið fyrir 5 herbergjum á efri hæð en móttöku, setustofu og veitingasal (einungis fyrir hótelgesti) á jarðhæð. Eldhús uppfært sem fullgilt framleiðslueldhús ostigi að kjallara og komið fyrir starfsmannaðstöðu ofl. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 1.6.2026

2.Hofstígur 20 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2508028
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið breytta umsókn Ingimars Skjóldals Jóhannssonar um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á grundvelli áður samþykktrar byggingarheimildar fyrir flutningi og standsetningu sumarhúss úr timbri, samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum Verkfræðistofu Sveins Valdimarssonar, dags. 6.8.2025.
Afgreiðslu málsins er frestað.
Við yfirferð aðaluppdrátta eru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Fyrirhugað hús uppfyllir ekki kröfur byggingarreglugerðar um lofthæð í íbúðarrýmum sbr. 6.7.2 gr.
Gera þarf grein fyrir sorpgerði á lóð og staðsetja skal rotþró innan byggingarreits.
Athugasemdir verða sendar hönnuði til yfirferðar og úrbóta áður en erindið verður tekið fyrir að nýju.

3.Efri-Rauðalækur, L165076. Takthestar ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2605077
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Evu Dyröy fyrir hönd Takthesta ehf., kt. 570807-1960 um starfsleyfi til reksturs gististaðar við Efri-Rauðalæk, rýmisnúmer 110103 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 29.05.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

4.Ásholt, L223328.Töltspor ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis
2605076
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Ólafs Brynjars Ásgeirssonar fyrir hönd Töltspor ehf., kt., 701112-0670 um starfsleyfi til reksturs gististaðar við Ásholt, matshlutanúmer 010102 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 29.05.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn vegna erindisins þar sem aðaluppdrættir sem fylgja málinu hafa ekki hlotið samþykki byggingarfulltrúa. Jafnframt liggur fyrir að búið er að innrétta íbúð í bílskúr fasteignarinnar án samþykkis og án þess að fyrir liggi viðeigandi leyfi fyrir þeirri framkvæmd.
Ekki verður unnt að veita jákvæða umsögn fyrr en fullnægjandi gögn hafa verið lögð fram og framkvæmdin hefur verið færð til samræmis við ákvæði mannvirkjalaga og byggingarreglugerðar.
Ekki verður unnt að veita jákvæða umsögn fyrr en fullnægjandi gögn hafa verið lögð fram og framkvæmdin hefur verið færð til samræmis við ákvæði mannvirkjalaga og byggingarreglugerðar.
Fundi slitið - kl. 09:00.
Athugasemdir byggingarfulltrúa verða sendar hönnuð til yfirferðar og úrbóta áður en erindið verður tekið fyrir að nýju.