2. fundur 10. júní 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Hvammur 3 164984 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2606015Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Birgis Leós Ólafssonar, fh. Landsvirkjunar, um byggingarheimild til byggingar tveggja hreinsivirkja í tengslum við vinnubúðir í Hvammi 3.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Tindasel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2509054Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Delux Lodges ehf um leyfi til að breyta hlöðu á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Úti/Inni arkitektum dags. 1.9.2025.

Núverandi "hlöðu" breytt - sett milligólf og komið fyrir 5 herbergjum á efri hæð en móttöku, setustofu og veitingasal (einungis fyrir hótelgesti) á jarðhæð. Eldhús uppfært sem fullgilt framleiðslueldhús ostigi að kjallara og komið fyrir starfsmannaðstöðu ofl. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 8.6.2026
Samþykkt
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

3.Nes land 164744 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2606021Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Svans Þórs Brandssonar, fh. IO fasteigna, um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi úr timbri á tveimur hæðum, alls 264,1 m², samkvæmt aðaluppdráttum, dags. 2.6.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem gildandi deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir byggingu íbúðarhúss á viðkomandi lóð.
Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 10:00.