3. fundur 16. júní 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Nes land 164744 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2606021Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Svans Þórs Brandssonar, fh. IO fasteigna, um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi úr timbri á tveimur hæðum, alls 264,1 m², samkvæmt aðaluppdráttum, dags. 2.6.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Stiga vantar á milli hæða.
HSL vantar í bílgeymslu.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Bólstaður - Flokkur 2

Málsnúmer 2606029Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Gunnlaugs Björns Jónssonar, fh. Guðjóns Steinssonar, um byggingarheimild til byggingar 31,7 m² sólstofu við íbúðarhús á Bólstað, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 15.6.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Skilgreina þarf öryggisgler í sólstofu.

3.Hofstígur 8 (L227774) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið breytta umsókn Friðriks Ólafssonar, fh. FA smíði ehf., um byggingarheimild til byggingar þriggja 46,5 m² gestahúsa á einni hæð úr timbri, samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum Meter teiknistofu, dags. 6.5.2026. Fyrri umsókn gerði ráð fyrir byggingu tveggja gestahúsa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Á uppdráttum er vísað til húsa sem frístundarhúsa. Í samræmi við gildandi skipulagsskilmála skal orðalagi breytt þannig að umrædd hús séu skilgreind og merkt sem gestahús.

4.Faxaflatir 4, L233063. Faxaflatir Apartments. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2606025Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Friður ehf., kt. 520220-2320, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á Faxaflötun 4 á Hellu, rýmisnúmer 0202 fyrir 4 gesti. Umsókn barst 11.6.2026.
Byggingarfulltrúi synjar erindinu með vísan til fyrri synjunar frá 4.11.2025. Áform umsækjanda samræmast ekki gildandi deiliskipulagi, sem gerir ekki ráð fyrir gistirekstri á viðkomandi byggingareit heldur einungis starfsmannaaðstöðu, verslunar- og veitingastarfsemi. Engar breytingar hafa orðið á forsendum málsins frá fyrri afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 10:00.