4. fundur 01. júlí 2026 kl. 08:00 - 10:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Kaldakinn 2B (L234471) - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

2606051

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Elvu Bjarkar Margeirsdóttur, fh. Daða Þórs Einarssonar og Elínar Írisar Fanndal Jónsdóttur, um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi með bílskúr og hesthúsi á lóðinni Kaldakinn 2B, alls 249,8 m², samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 23.6.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Brunahólfandi hurðar skulu vera EI 60 CS.
Málsetja þarf stærðir björgunaropa á grunnmynd.
Sambrunahætta er á milli bilgeymslu og íbúðar við bakdyr og glugga.
Staðsetja skal sorpgerði a.m.k 3m frá húsi.
Setja þarf inn öryggisákvæði í byggingarlýsingu vegna setlaugar á lóð.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skógasel - Flokkur 1

2606059

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Þorgeirs Óskars Margeirssonar, fh. Gunnars Þorsteinssonar, um byggingarheimild fyrir 46,5 m² sumarhúsi úr timbri á lóðinni Skógarseli, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 31.5.2023.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Málsetja skal stærðir björgunaropa á grunnmynd.
Taka út texta þar sem vísað er í íbúðarhús.
Merkja skal staðsetningu rotþróar á afstöðumynd.
Uppbygging þakvirkis hæfir ekki 2°þakhalla.

3.Hofstígur 20 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

2508028

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið breytta umsókn Ingimars Skjóldals Jóhannssonar um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á grundvelli áður samþykktrar byggingarheimildar fyrir flutningi og standsetningu sumarhúss úr timbri, samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum Verkfræðistofu Sveins Valdimarssonar, dags. 6.8.2025.Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 23.6.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Bjálmholt 165072 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

2606062

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Hlyns Axelssonar, fh. Lyngáss 13 ehf., um byggingarleyfi fyrir 1.531,2 m² framleiðslu- og þjónustubyggingu í Bjálmholti, samkvæmt aðaluppdráttum HAX arkitekta, dags. 26.6.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem hæð mannvirkis og heildarstærð fara umfram heimildir gildandi deiliskipulags.

Við yfirferð aðaluppdrátta eru jafnframt gerðar eftirfarandi athugasemdir: Fjöldi salerna er ekki nægjanlegur miðað við fyrirhugaðan gestafjölda, sem samkvæmt gögnum málsins er allt að 200 gestir.

5.Dynskálar 46 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

2512067

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Vigfúsi Halldórssyni, fyrir hönd Reykjagarðs hf. um byggingarleyfi fyrir 4.001,3 m² viðbyggingu við iðnaðarhús. Með umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Balsi ehf., dagsettir 10.11.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 25.6.2026
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.

6.Tindasel 1, L234038. Deluxe Lodges ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

2606052

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Sigurðar Sindra Magnússonar fyrir hönd Deluxe Lodges ehf., kt. 680923-0510, um starfsleyfi til reksturs gististaðar að Tindaseli 1, L234038 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 24.06.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:30.