1.Landmannaafréttur - Umsókn um byggingarleyfi (vinnubúðir Ístaks) - Landmannaafréttur - Flokkur 3
Málsnúmer 2607044Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Helga Guðjóns Bragasonar, fh. Ístaks hf., um byggingarleyfi fyrir 786 m² vinnubúðum með 44 gistirýmum og aðstöðurýmum fyrir starfsfólk á Landmannaafrétti í tengslum við stækkun Sigölduvirkjunar, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 26.6.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir byggingarfulltrúa verða sendar hönnuði til yfirferðar og úrbóta áður en málið verður tekið til afgreiðslu að nýju.
2.Borgir - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 2607045Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sveinbjörns Jónssonar, fh. Guðjóns Helgasonar, um byggingarheimild til byggingar 128,5 m² tækjageymslu á lóðinni Borgir (L231526), samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 29.6.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu þar sem fyrirhuguð staðsetning mannvirkisins er utan þess byggingarreits sem skilgreindur er í gildandi skipulagi.
3.Nes land 164744 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Málsnúmer 2606021Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Svans Þórs Brandssonar, fh. IO fasteigna, um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi úr timbri á tveimur hæðum, alls 264,1 m², samkvæmt aðaluppdráttum, dags. 2.6.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Landmannaafréttur - Umsókn um byggingarleyfi (vinnubúðir Landsvirkjunar v. stækkunar Sigöldu) - Flokkur 2
Málsnúmer 2607054Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Anne Bruun Hansen, fh. Landsvirkjunar, um byggingarleyfi fyrir vinnubúðum, mhl. 01-05, alls 1.545,5 m², með gistirýmum, aðstöðurýmum og skrifstofum fyrir starfsfólk á Landmannaafrétti, í tengslum við stækkun Sigölduvirkjunar, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 14.7.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir byggingarfulltrúa verða sendar hönnuði til yfirferðar og úrbóta áður en málið verður tekið til afgreiðslu að nýju.
5.Umsókn um byggingarheimild (skilti v. stækkunar Sigöldu) - Landmannaafréttur - Flokkur 1
Málsnúmer 2607055Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um byggingarheimild fyrir uppsetningu tveggja upplýsingaskilta á bílastæði sunnan Tungnaár við Fjallabaksleið nyrðri (F208), í tengslum við stækkun Sigöldustöðvar. Skiltin eru ætluð til tímabundinnar notkunar á framkvæmdartíma verksins, áætlað til fjögurra ára, og er þeim ætlað að veita almenningi upplýsingar um framkvæmdina og öryggisráðstafanir á svæðinu.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að jákvæð umsögn Forsætisráðuneytisins liggi fyrir vegna framkvæmdarinnar.
Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi skilyrði hafa verið uppfyllt:
-Jákvæð umsögn Forsætisráðuneytisins liggur fyrir.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi skilyrði hafa verið uppfyllt:
-Jákvæð umsögn Forsætisráðuneytisins liggur fyrir.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Fundi slitið - kl. 11:00.