7. fundur 12. ágúst 2026 kl. 08:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Höfuðból 305 (L232010) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2608008Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigfúsar Halldórssonar, fh. 6260 ehf., um byggingarheimild til byggingar 223 m² sumarhúss með bílgeymslu ásamt 75,9 m² gestahúsi með bílgeymslu, samkvæmt aðaluppdráttum Balsa ehf., dags. 20.7.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem fyrirhuguð stærð aukahúss er umfram heimilaða stærð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.


2.Stóru-Vellir lóð 192639 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2008006Vakta málsnúmer

Eigandi óskar eftir heimild til byggingar sumarhúss úr timbri á lóð sinni, samkvæmt aðaluppdráttum Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar, dags. 25.7.2020.



Uppfærðir aðaluppdrættir ásamt skráningartöflu bárust 5.8.2026. Helstu breytingar felast í breyttu innra skipulagi hússins auk þess sem heildarstærð þess breytist um u.þ.b. 1 m² frá áður samþykktum uppdráttum.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Setja þarf inn uppl. um frágang kamínu.

3.Saurbær (L165155) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1

Málsnúmer 2607017Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Guðmundar Hjaltasonar hjá Eflu, fh. Félagsbúið Saurbær, um byggingarheimild til byggingar 954,2 m² fjóss á jörðinni Saurbæ (L165155), samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 6.7.2026.



Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir á svæðinu. Skipulags- og umferðarnefnd gerði ekki athugasemdir við áform umsækjanda, enda liggur fyrir staðfesting á samþykki nærliggjandi jarðareigenda fyrir áformunum.



Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Farið er fram á brunahólfun tæknirýmis vegna fjarlægðar frá slökkvistöð og þar af leiðandi lengri viðbragðstíma slökkviliðs.

4.Melalda 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2608024Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Eiríks Vignis Pálssonar, fh. GG tré ehf., um byggingarleyfi fyrir 605,6 m² fjölbýlishúsi á tveimur hæðum með alls 10 íbúðum, úr timbri á steyptum undirstöðum, á lóðinni Melöldu 6, samkvæmt aðaluppdráttum Pro-Ark teiknistofu, dags. 7.8.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Björgunarop [BO] íbúða 201 og 205 uppfylla ekki kröfur byggingarreglugerðar 112/2012.

5.Faxaflatir 4, L233063. Faxaflatir Aparments. Friður ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2608002Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Baldurs Inga Halldórssonar fyrir hönd Friðar ehf., kt.52020-2320, um starfsleyfi til reksturs gististaðar í tveimur íbúðum á Faxaflötum 4 á Hellu. Beiðni barst 05.08.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn vegna fyrirhugaðs gistireksturs.

Umrætt húsnæði er staðsett á skilgreindu verslunar- og þjónustusvæði samkvæmt Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016?2028 og fyrir svæðið liggur fyrir samþykkt deiliskipulag.

Samkvæmt skilmálum gildandi deiliskipulags er á viðkomandi byggingarreit gert ráð fyrir starfsmannaaðstöðu, verslunar- og veitingastarfsemi. Gististarfsemi er ekki tilgreind sem heimil starfsemi á byggingarreitnum.

Með vísan til framangreinds er ekki unnt að veita jákvæða umsögn um rekstrarleyfi fyrir gististað á grundvelli gildandi skipulagsheimilda.

6.Hagi lóð, L192681. Lake cabin ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2511223Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Úlfs Ísfelds Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 300495-2149 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Hagi lóð, L192681, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 24.11.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

7.Hagi lóð, L192681. Lake cabin ehf. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfis

Málsnúmer 2512094Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Úlfs Ísfeld Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 550523-0350, um starfsleyfi til reksturs gististaðar á Hagi lóð, L192681 í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 17.12.2025.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 10:00.